Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells sótti síðustu búðir og sér ekki eftir því:
Námskeiðið var alls ekki á góðum tíma fyrir mig síðast en ég lét það í forgang og sé ekki eftir því. Fyrirlesararnir voru mjög áhugaverðir og allir með gríðarlega góða punkta. Hver og einn þjálfari er með sinn stíl, þegar maður sækir námskeið er maður alltaf með sitt prógram í höfðinu, ég náði að gera marga punkta frá fyrirlesurnunum að mínu og var ég heillaður af námskeiðinu. Ég hóf strax að tileinka mér hluti af námskeiðinu sem ég vildi óska að ég hefði vitað áður. Námskeiðið var vel upp sett, og aðstaðan til fyrirmyndar hjá Keilisfólkinu.
Þjálfarabúðir Keilis
Dagana 24. – 26. febrúar verða haldnar Þjálfarabúðir í annað sinn hjá Heilsuskóla Keilis. Þjálfarabúðirnar eru haldnar í samstarfi við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og samanstanda af þriggja daga námskeiði með þremur leiðbeinendum frá Bandaríkjunum sem eru framúrskarandi á sínu sviði. Síðasti skráningardagur er á morgun, fimmtudaginn 10. febrúar.
Áhersla er lögð á styrktar- og ástandsþjálfun bæði fyrir afreksíþróttamenn og hinn venjulega heilsuræktariðkanda sem gengur út frá því að hámarka árangur og lágmarka meiðsli.
Þátttakendur á síðustu þjálfarabúðum voru yfir 120 og voru ýmist sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar, einkaþjálfarar, íþróttaþjálfarar eða koma á einhvern hátt að þjálfun sem fagmenn. Fjöldamargir hafa nú skráð sig á Þjálfarabúðirnar í febrúar. Þar má nefna Geir Sveinsson handboltaþjálfara, Ólaf Kristjánsson knattspyrnuþjálfara, Helga Guðfinnsson körfuknattleiksþjálfara, Silju Úlfarsdóttur frjálsíþróttadrottningu, Stefán Ólafsson sjúkraþjálfara, Egil Gillz Einarsson íþróttafræðing, Loga Geirsson handboltamann og Einar Einarsson sjúkraþjálfara.
Leiðbeinendur á Þjálfarabúðunum í febrúar eru Nick Tumminello, Eric Cressey og David Jack.
Meðal efnisatriða eru:
Áhrifaríkar og dýnamískar upphitunaraðferðir sem skila bestu mögulegu frammistöðu.
Þjálfunaraðferðir fyrir stöðugleika (core).
Kvið- og bakæfingar sem eru meiðslafyrirbyggjandi, styrkaukandi og frammistöðubætandi.
Líkamsstöðu- og hreyfigreiningar.
Allt um ákjósanlega þjálfun á meðan á endurhæfingu stendur og eftir að endurhæfingu er lokið.
Styrktarþjálfunaraðferðir til að lágmarka meiðsli á álagstímabili.
Hraða- og kraftaukandi æfingar.
Aðlögun styrktar- og þolæfinga eftir íþróttagreinum.
Hlutverk styrktar- og sjúkraþjálfara í þjálfarateymum félags- og landsliða.
Hugarfarsþáttinn sem skiptir svo miklu máli, bæði hjá íþróttamönnum og hinum almenna heilsuræktariðkanda sem ætlar að ná árangri.
Opið er fyrir skráningu til 10. febrúar. Ítarlegar upplýsingar um Þjálfarabúðirnar, leiðbeinendur og hvern námskeiðsdag fyrir sig má finna á heimasíðu Þjálfarabúðanna.
Allar nánari upplýsingar veitir
Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir
Forstöðumaður Heilsuskóla
sími: 578 4052
tölvupóstur: [email protected]
Mynd/ David Jack einn leiðbeinenda við Þjálfarabúðir Keilis





