Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld þar sem Hamar vann sinn sextánda deildarleik í röð og er félagið enn ósigrað. Að þessu sinni voru það KR konur sem fengu að kenna á Ágústi Björgvinssyni og Blómabæjarkonum og kvittuðu Hvergerðingar þar með fyrir tapið í bikarnum um síðustu helgi.
KR 54-65 Hamar
Margrét Kara Sturludóttir var atkvæðamest í liði KR með 14 stig og 12 fráköst. Hjá Hamri var Jaleesa Butler með 29 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar. Hamar er því áfram eina ósigraða lið deildarinnar.
Haukar 53-74 Keflavík
Ragna Margrét Brynjarsdóttir gerði 19 stig og tók 13 fráköst í liði Hauka. Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 16 stig á sínum gamla heimavelli í Hafnarfirði og gaf einnig 7 stoðsendingar.
Grindavík 77-82 Snæfell
Monique Martin fór mikinn í liði Hólmara í kvöld með 34 stig og 20 fráköst. Hjá Grindavík var nýji liðsmaðurinn Janese Banks með 23 stig og 14 fráköst.
Þá fór einn leikur fram í 1. deild karla þar sem Þór Þorlákshöfn heimsótti Laugdæli. Lokatölur á Vatninu voru 70-98 Þórsurum í vil. Þorsteinn Ragnarsson gerði 21 stig og tók 7 fráköst í liði Þórs. Hjá Laugdælum var Pétur Már Sigurðsson með 28 stig og 6 fráköst.
Nánar síðar…





