HomeFréttirTíu í röð hjá Dallas: Clippers með sigur í Madison Square Garden

Tíu í röð hjá Dallas: Clippers með sigur í Madison Square Garden

 
Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og unnu Dallas Mavericks sinn tíunda deildarleik í röð og er í 2. sæti vesturstrandarinnar á eftir San Antonio Spurs. Þá gerðu Blake Griffin og liðsmenn Clippers góða ferð til New York þar sem þeir lögðu heimamenn í Madison Square Garden.
Sacramento 100-102 Dallas
Liðsmenn Dallas komu sterkir af bekknum og stigahæstir þeirra voru Jason Terry með 22 stig og Jose Barrea með 20 stig en stigahæsti byrjunarliðsmaður Dallas í leiknum var Jason Kidd með 14 stig. Hjá Sacramento var Samuel Dalembert með 20 stig og 7 fráköst, einnig af bekknum!
 
New York 108-116 LA Clippers
Randy Foye var stigahæstur í gestaliði Clippers í nótt með 24 stig, Blake Griffin gerði 21 stig og Baron Davis var með myndarlega tvennu þegar hann skoraði 16 stig og gaf 16 stoðsendingar. Góður sigur hjá Clippers sem léku án Erics Gordons sem var fjarverandi með tognaðan úlnlið. Hjá New York var Amare Stoudemire stigahæstur með 23 stig en kappinn var rólegur í fráköstunum að þessu sinni, aðeins 5 stykki.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Cleveland 94-103 Detroit (26 tapleikir í röð hjá Cavs!)
Indiana 104-103 Charlotte
New Jersey 103-101 New Orleans
Philadelphia 95-99 Orlando
Toronto 100-111 San Antonio
Washington 100-85 Milwaukee
Utah 86-91 Chicago
Golden State 116-114 Denver
 
Mynd/ Jason Terry hefur verið að koma sterkur af bekknum hjá Dallas undanfarið. Hann setti 22 stig í nótt í sigri liðsins gegn Sacramento Kings.
 
Fréttir
- Auglýsing -