Haukur Helgi Pálsson og Maryland áttu ekki í vandræðum þegar Longwood skólinn kom í heimsókn í bandarísku háskóladeildinni í nótt. Haukur setti persónulegt met hjá Maryland er hann skoraði 13 stig í leiknum á 14 mínútum.
Lokatölur leiksins voru 106-52 Maryland í vil en auk þess að gera 13 stig á 14 mínútum var Haukur með 4 fráköst, 4 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Sean Mosley var stigahæstur hjá Maryland í leiknum með 20 stig.
Þetta var annar sigurleikur Maryland í röð sem nú hafa lokið þriggja leikja heimatörn og halda næst á útivöll er liðið mætir Boston College á útivelli þann 12. febrúar næstkomandi.
Með sigrinum í nótt er Maryland í 6. sæti í ACC riðlinum, 5 sigrar og 4 tapleikir. Duke skólinn trónir á toppi deildairnnar með 9 sigra og 1 tapleik.
Mynd/ Haukur sækir að körfu Longwood í leiknum í nótt





