Fjöldi leikja fer fram í íslenska boltanum í kvöld og ber þá hæst að sautjándu umferð í Iceland Express deild karla lýkur göngu sinni með fjórum leikjum. Fresta varð viðureign KFÍ og Hamars í gærkvöld sökum veðurs og verður gerð önnur tilraun til að komast í Jakann í dag. Þá komst Snæfell í fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express deildarinnar í gær með fræknum 86-90 sigri á Grindavík í Röstinni.
Leikir kvöldsins í IEX karla, allir kl. 19:15:
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Hamar
Njarðvík-KR
ÍR-Haukar
Tindastóll-Stjarnan
Stjarnan lagði KFÍ í Garðabæ í síðustu umferð á meðan Stólarnir fóru erindisleysu í Stykkishólm. Aðeins tvö stig skilja að liðin í deildinni, Stjarnan í 6. sæti með 16 stig og Tindastóll í 7. sæti með 14 stig. Sigur í kvöld hjá Stólunum setur liðin jöfn að stigum og því ekki úr vegi að minnast á að Stólarnir hafa unnið sex síðustu deildarleiki sína í röð á heimavelli. Árnagurinn hefur ekki verið jafn glæstur á útivelli þar sem Tindastóll hefur tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum á útivelli.
KFÍ-Hamar
Blóðug botnbaráttan mun vísast gefa af sér hörkuleik í Jakanum í kvöld. Bæði Hamar og KFÍ eru á kunnuglegum slóðum, 1. deildin er að banka og nú fer hver að verða síðastur til að ná sér í stig. Ísfirðingar unnu síðasta heimaleik þegar topplið Snæfells kom í heimsókn en Hamar er statt í verstu taphrinu deildarinnar í augnablikinu þar sem liðið hefur tapað síðustu átta deildarleikjum sínum.
Njarðvík-KR
KR er vafalítið heitasta lið landsins um þessar mundir, Vesturbæingar hafa unnið síðustu fimm deildarleiki í röð og eins og Snæfell hafa þeir ekki tapað heimaleik þetta tímabilið. Njarðvíkingar hafa átt erfitt uppdráttar þetta tímabilið en hafa þó unnið síðustu tvo deildarleiki sína og fengu á dögunum veglega viðbót í tveimur erlendum leikmönnum. Með sigri í kvöld þéttir KR pakkann enn frekar á toppnum en Njarðvíkursigur gefur heimamönnum aukið færi á því að komast í úrslitakeppnina.
ÍR-Haukar
ÍR-ingar eru fullir sjálfstrausts um þessar mundir enda skelltu þeir Grindavík í síðasta deildarleik og Haukar höfðu góðan 91-75 sigur á Fjölni. Um þessar mundir er ÍR í 8. sæti deildarinnar og þ.a.l. inni í úrslitakeppninni en Gunnar Sverrisson og hans menn vita fullvel að það er lítið ráðrúm til að misstíga sig um þessar mundir. Að sama skapi hafa Haukar bætt við sig reyndum leikmanni í Sigurði Þór Einarssyni sem kemur úr fyrirliðastöðu Horsens IC í Danmörku til að hjálpa sínum gömlu félögum á lokaspretti deildarinnar. Sigurður mun í kvöld leika sinn fyrsta leik í þrjú ár fyrir Hauka.
Þá eru þrír leikir á dagskránni í 1. deild karla í kvöld:
19:15 Skallagrímur-FSu
19:15 Breiðablik-Leiknir
20:00 Valur-Höttur
Fjölmennum á vellina í kvöld!





