Bergdís Ragnarsdóttir skipti yfir til KR í sumar eftir að hafa unnið 1. deild kvenna með Fjölni á síðustu leiktíð. Bergdís hefur nú söðlað um að nýju og gengið aftur í raðir Fjölniskvenna sem nú berjast fyrir tilverurétti sínum í Iceland Express deild kvenna.
,,Það var svolítil pressa á mér að koma aftur í Fjölni en mér líkaði mjög vel í KR þannig þetta var erfið ákvörðun. Mér fannst mjög erfitt að horfa upp á uppeldisfélagið mitt vera í fallbaráttu án þess að reyna að hjálpa þeim og ákvað að skipta yfir og gera allt sem ég get til að hjálpa Fjölni. KR er líka með mikinn og góðan mannskap þannig þetta ætti ekki að hafa nein slæm áhrif á þær,” saðgi Bergdís sem gerði 4 stig á 18 mínútum í tapleik Fjölniskvenna gegn Njarðvík í síðustu umferð.
Mynd/ Tomasz: Bergdís Ragnarsdóttir





