Stjarnan heimsótti Tindastól í kvöld og langaði væntanlega að hefna fyrir fyrri leik liðanna á tímabilinu, en þar unnu Stólarnir sinn fyrsta leik í vetur og eina útileikinn sem af er. Hinsvegar höfðu þeir unnið síðustu sex heimaleiki og því var ljóst að Stjörnunnar beið erfitt verkefni. Stjarnan mætti aðeins með átta leikmenn í Síkið í kvöld, en þeir lögðu allir sitt að mörkum og höfðu á endanum góðan sigur, í leik sem þó var jafn lengstum. Í lok þriðja leikhluta og upphafi þess fjórða, bjuggu gestir til nokkurt forskot sem heimamenn náðu síðan ekki að brúa og lokatölur 78 – 90.
Tindastóll tefldi fram hefðbundnu byrjunarliði í þeim; Rikka, Kiki, Hayward, Helga Rafni og Sean. Hjá Stjörnunni voru það Jovan, Renato, Daníel, Marvin og Justin sem byrjuðu. Stólarnir byrjuðu leikinn ágætlega eins og þeir hafa nú gert oft í síðustu heimaleikjum. Helgi Rafn mætti sterkur til leiks, reif niður fráköst í gríð og erg og var fljótlega kominn með 6 stig að auki. Tindastóll náði mest 12 stiga forskoti í stöðunni 19 – 7. Teitur tók þá leikhlé fyrir gestina sem tóku við sér í kjölfarið og náðu muninum niður í sex stig fyrir lok fyrsta fjórðungs. Staðan 21 – 15.
Þeir héldu síðan þar áfram þar sem frá var horfið í upphafi þess annars og um miðjan leikhlutann var munurinn aðeins eitt stig, 26 – 25. Varnarleikur beggja liða var á þessum kafla nokkuð öflugur og streðuðu bæði lið sóknarlega. Ekki lagaðist hann fyrir hlé og staðan í hálfleik 32 – 31. Fyrir heimamenn voru Helgi Rafn, Rikki og Sean allir komnir með 6 stig hver, en hinu megin var Marvin stigahæstur með 8 stig.
Liðin skiptust svo á um forystu lengstum í þriðja leikhluta og á kafla settu Rikki og Justin upp skotsýningu þar sem þristum var dritað af miklum móð. Þegar um ein og hálf mínúta var eftir af þriðja leikhluta var staðan 53 – 55. Síðasta orðið í leikhlutanum átti hinsvegar Daníel Guðmundsson fyrir Stjörnuna þegar hann setti niður tvo erfiða þrista og munurinn skyndilega orðinn átta stig og einn leikhluti eftir.
Í fjórða fjórðungi voru fjögur fyrstu stigin heimamanna, en síðan skoraði Stjarnan sjö stig í röð og nú munaði orðið ellefu stigum. Borce tók leikhlé fyrir Tindastól þegar tæpar fimm mínútur voru eftir og reyndi að blása lífi í sóknarleikinn. Hayward Fain og Rikki skoruðu sinn hvorn þristinn á næstu mínútu, en Justin svaraði með einum slíkum. Stólarnir minnkuðu síðan muninn tvívegis í fimm stig, en nær komust þeir ekki. Þeir réðu einfaldlega ekki við varnarleik Stjörnunar og Justin Shouse var öryggið uppmálað á vítalínunni síðustu mínútuna og Stjarnan vann að lokum 12 stiga sigur, 78 – 90.
Allt lið Stjörnunar átti skínandi leik í kvöld, en Justin Shouse bar þó af. Hann setti niður 21 stig í síðari hálfleik og lauk leik með 27. Hittnin var góð hjá öllu liðinu ásamt fínum varnarleik lengstum. Hjá Tindastóli var Friðrik Hreinsson bestur með 20 stig og hann ásamt Helga Rafni með 9 stig og 17 fráköst, einu sem léku vel fyrir heimamenn. Aðrir náðu sér einfaldlega ekki á strik og munar um minna.
Eftir leikinn er Stjarnan í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig, en Tindastóll færðist um eitt sæti, niður í það áttunda, enn með 14 stig.
Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunar var mjög ánægður með leik sinna manna í kvöld.
“Þetta var bara virkilega flott, einn okkar besti leikur í nokkurn tíma. Sýndum mikla þolinmæði og fundum síðan besta skotið”
Tindastóll hefur verið að spila mjög sterka vörn, en þið funduð svar við henni í kvöld?
“Já, og kannski svarið okkar eigin varnarleikur sem var mjög góður. Ég var ánægður hvernig við spiluðum, fórum vel yfir þeirra sóknarleikur og náðum síðan að stoppa þeirra helstu menn í kvöld.”
Borce Ilievski var ekki eins ánægður með fyrsta tapið á heimavelli í langan tíma. Hvað fór úrskeiðis?
“Ég held að við höfum tapað aðeins sjálfstraustinu í síðustu tveimur tapleikjum. Sumir leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða eftir KR leikinn, en þetta á ekki að vera afsökun fyrir slökum leik í kvöld. Við eigum síðan erfiðan útileik á sunnudaginn gegn Hamri og þurfum aðeins að taka okkur saman í andlitinu fyrir þann leik.”
Stigaskor Tindastóls: Rikki 20, Sean 17, Hayward 11/10 fráköst, Kitanovic 10, Svavar 9, Helgi Rafn 9/17 fráköst og Helgi Freyr 2.
Stjarnan: Justin 27, Renato 14, Jovan 13, Marvin 12/8 fráköst, Daníel 9, Fannar 6, Guðjón 5 og Ólafur 4.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson. Ekkert út á þá að setja enda vanir menn.
Áhorfendur: 240
Texti: Jóhann S.





