„Frá því fyrir áramót þegar við unnum Hamar þá hefur þetta verið allt á uppleið, fyrir utan tapið á móti Keflavík,“ sagði sigurreifur Gunnar Sverrisson eftir að ÍR vann öruggan sigur á liði Hauka í Hellinum í gær.
„Ég er gríðarlega ánægður með þetta í kvöld því það er örugglega erfitt að koma inn sem leikmaður og þjálfarinn búinn að hugsa alla vikuna hvernig eigi að halda þeim niðri á jörðinni eftir frábæran leik gegn Grindvík í síðustu viku. Þetta var frábær leikur í kvöld og ég get ekki annað en verið ánægður.“
ÍR hefur tekið stakkaskiptum frá því lélegri byrjun í deildinni og unnið núna sex leiki í röð. Það lá því beinast við að spyrja Gunnar hvaða hugarfarsbreyting varð á liðinu.
„Ég er búinn að vera að hugsa þetta í allan vetur og ætli það sé ekki á þessum tímapunkti að menn eru farnir að þekkja hvern annan betur enda er þetta í raun nýtt lið frá því í fyrra. Sóknarleikurinn er orðinn frábær, varnarleikurinn var lélegur fyrir áramót en við erum búnir að finna okkur og fikra okkur áfram og er orðinn mjög góður og ég helda að það sé breytingin.“
„Eftir að við fengum Jimmy [James Bartolotta] í liðið, ég verð að viðurkenna það, er hann búinn að stórbæta leik okkar frá A-Ö. Ekki bara sem leikmaður þá er hann frábær félagi utan vallar og hefur aukið sjálfstraustið hjá leikmönnum.“
Fyrrum Haukaleikmennirnir Kristinn Jónasson og Vilhjálmur Steinarsson voru ekki með ÍR í gærkvöld og sagði Gunnar að þeir ættu báðir við einhver bakmeiðsl að stríða og óvíst hvort að þeir yrðu meira með á þessari leiktíð.
Sigurður Þór Einarsson snéri aftur á dansgólfið íklæddur rauðum Haukabúning í fyrsta skipti í þrjú ár. Hann var eðlilega ekki jafn hress og Gunnar eftir leikinn.
„Við byrjuðum illa og spiluðum ekki nógu góða vörn,“ sagði Sigurður fámáll.
Sigurður sagði að sennilega hafi menn verið of værukærir eftir flotta leiki undanfarið og að menn hafi kannski verið of „líbó“ í byrjun.
En hvernig finnst Sigurði að vera kominn aftur í Haukagallann? „Það er frábært,“ sagði hann að lokum.





