HomeFréttirLeikir dagsins: Hamar deildarmeistari ef liðið vinnur Keflavík í dag

Leikir dagsins: Hamar deildarmeistari ef liðið vinnur Keflavík í dag

 
Tveir leikir fara fram í Iceland Express deild kvenna í dag og getur ósigrað lið Hamarskvenna orðið deildarmeistari þegar Keflavík mætir í Blómabæinn í toppslag umferðarinnar. Hamar hefur unnið 15 deildarleiki í röð og eina liðið annað en Hamar sem getur orðið deildarmeistari er Keflavík en þá þarf að vinnast sigur hjá gestunum í dag.
Viðureign Hamars og Keflavíkur hefst kl. 17:00 í Hveragerði en kl. 15:00 mætast Snæfell og Njarðvík í Stykkishólmi í toppslag B-riðils deildarinnar. Snæfell hefur fjögurra stiga forskot á Njarðvík í B-riðli, Snæfell með 16 stig á toppi riðilsins en Njarðvík 12 stig í 2. sætinu. Grindavík og Fjölnir eru í 3.-4. sæti bæði með 6 stig og ætli liðin sér í úrslitakeppnina mega hlutirnir heldur betur ganga upp hjá þessum tveimur liðum í næstu umferðum.
 
Fréttir
- Auglýsing -