HomeFréttirÚrslit: Spennusigur hjá Njarðvík í Hólminum

Úrslit: Spennusigur hjá Njarðvík í Hólminum

 
Einum leik er lokið í Iceland Express deild kvenna í dag en þá gerðu Njarðvíkingar góða ferð í Stykkishólm þegar Snæfell tók á móti grænum í toppslag B-riðils. Með sigrinum hleyptu Njarðvíkingar aukinni spennu í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni þar sem Snæfell hefur nú 16 stig á toppi B-riðils en Njarðvík 14 stig í 2. sæti.
Lokatölur leiksins voru 78-81 Njarðvík í vil. Monique Martin var venju samkvæmt stigahæst hjá Hólmurum með 33 stig og 15 fráköst. Hjá Njarðvíkingum var Shayla Fields með 34 stig og 6 stoðsendingar.
 
Þá var að hefjast viðureign Hamars og Keflavíkur en ef Hamar hefur sigur í leiknum verður liðið deildarmeistari.
 
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Barist í teignum í Hólminum
 
Nánar síðar…
Fréttir
- Auglýsing -