Liðin í fyrsta og öðru sæti b-riðils Iceland express deildar kvenna, Snæfell og Njarðvík, mættust í Hólminum í dag. Snæfell er enn með 16 stig en Njarðvík sem var með 12 stig en núna 14 stig horfir hungruðum augum á efsta sæti riðilssins eftir 78-81 sigur þar sem þær Shayla Fields sem var með 34 stig fyrir grænar og Monique 33 stig fyrir heimastúlkur voru fun heitar.
Byrjunarlið leikisns.
Snæfell: Alda, Berglind, Monique, Helga, Hildur.
Njarðvík: Ólöf, Julia, Dita, Shayla, Árnína.
Njarðvíkurstúlkur voru ekki komnar til að sjá hvort búið væri að opna pylsuvagninn Meistarann og var Dita Liepkalne fersk strax í upphafi með 3 stig og 4 fráköst og Njarðvík komnar í 11-6. Laura Audere glímdi við smávægileg eymsli og byrjaði ekki inná í dag fyrir Snæfell en kom svo inn þegar á leið. Snæfellsstúlkurnar tóku leikhlé fljótt í upphafi leiks og eftir það jöfnuðu þær 13-13, komust yfir 15-13 og ætluðu sér að vera með í leiknum og náðu að vera yfir eftir fyrsta hluta 25-22. Mikið jafnræði með liðunum þar sem Monique og Dita drógu vagna sinna liða.
Snæfellsstúlkur komust í 34-29 en bæði lið voru að berjast vel í upphafi annars hluta. Jafnræðið í leiknum sýndi sig þegar Njarðvík komust yfir 38-42 en allt var jafnt í járnum fram að því og staðan 40-42 fyrir Njarðvík í hálfleik.
Í hálfleik voru stigahæstu leikmenn Snæfells, Monique Martin með 20 stig og 9 fráköst, Hildur Björg og Laura Audere með 7 stig hvor. Hjá Njarðvík var Dita Liepkalne með 16 stig og 9 fráköst, Shayla Fields og Julia Demirer 9 stig hvor.
Staðan var 50-51 og gríðaleg spenna farin að færast í leikinn þegar Berglind Gunnars setti þrist og kom Snæfelli í 53-51 en Njarðvík komst strax í 53-53 með stigum frá Shayla Fields og þannig var gangur leiksins í þriðja hluta sem endaði í stöðunni 55-57 fyrir Snæfell og engann veginn var hægt að spá í hvernig lokhlutinn yrði.
Laura Audere byrjaði fjórða hluta með þremur stigum en Ína María svaraði um hæl og setti annan til. Þegar hlutinn fjórði var hálfnaður var Njarðvík yfir 60-67. Þegar svo tvær mínútur voru eftir setti Berglind Gunnars þrist í stöðuna 72-72. Njarðvík komst með góðu áhlaupi í 72-78. Snæfell minnkaði muninn í 76-79 og pressaði og náðu aðeins að fikra sig að eins stig muninum 78-79 með stolnum bolta og tveimur vítaskotum frá Laura Audere. Njarðvík með Shayla Fields fremsta í flokki, en hún hafði verið Snæfelli mjög erfið og skorað grimmt, hún kláraði síðasta skotið niður og unnu þar með leikinn 78-81.
Helsta tölfræði leikmanna.
Snæfell:
Monique Martin 33/15 frák/6 stolnir/4 varin skot. Laura Audere 20/8 frák. Berglind Gunnarsdóttir 14/6 frák. Hildur Björg Kjartansdóttir 11/6 frák. Alda Leif Jónsdóttir 0/6 stoðs. Björg Guðrún 0/3 stoðs. Ellen Alfa 0. Helga Hjördís 0. Sara Mjöll 0. Birta Antons 0. Hrafnhildur Sif 0. Sunna Arnars 0.
Njarðvík:
Shayla Fields 33/4 frák/6 stoðs. Dita Liepkalne 16/19 frák/6 stolnir. Julia Demirer 16/11 frák. Ína María Einarsdóttir 6. Emelía Ósk Grétarsdóttir 4. Árnína Lena Rúnarsdóttir 2. Eyrún Líf Sigurðardóttir 1. Ólöf Helga Pálsdóttir 1. Auður Jónsdóttir 1. Anna María 0. Erna Hákonardóttir 0.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson.
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Julia Demirer sækir að körfu Snæfells.
Umfjöllun: Símon B. Hjaltalín.





