HomeFréttirÞægilegur sigur Hauka á Þór

Þægilegur sigur Hauka á Þór

 
Þórsarar máttu þola 26-92 tap fyrir Haukum b í gær þegar liðin áttust við í Síðuskóla í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Gestirnir frá Hafnafirði byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust fljótt í 9-0. Með góðri hittni náðu Haukastúlkur smá saman að byggja upp þægilega forystu og fór svo að lokum að Haukar lönduðu öruggum 26-92 sigri.
Heimamenn áttu í miklum vandræðum í byrjun leiks og héldu boltanum illa sem Haukarnir nýttu sér í vil og komust í 0-9. Heimamenn gáfust þó ekki upp þrátt fyrir erfiða byrjun og reyndu að komast inn í leikinn sem fyrst. Heimamenn náðu oft á tíðum að skapa sér ágætis skotfæri en niður vildi knötturinn einfaldlega ekki. Gestirnir áttu nánast teiginn og hirtu hvert frákast á fætur öðru sem og nýttu skot sín afar vel. Gestirnir leiddu því leikinn með 15 stigum eftir fyrsta fjórðung, 3-15. Sama var upp á teningnum í öðrum leikhluta. Sama hvað heimamenn reyndu í sóknarleiknum, lítið gekk upp og uppskáru einungis eitt stig í fjórðungnum þegar Greta Rún Árnadóttir setti niður vítaskot. Gestirnir hins vegar héldu áfram að nýta skot sín vel og hirtu fráköstin nánast af vild. Gestirnir leiddu því leikinn þægilega þegar liðin gengu til búningsklefa, 4-45 og sigur gestanna því nánast í höfn.
 
Heimamenn byrjuðu þó síðari hálfleikinn ágætlega og á nokkrum mínútum voru heimamenn búnir að skora jafn mörg stig í þriðja leikhluta eins og liðið hafði skorað í öllum fyrri hálfleik. Þó svo að sókn heimamanna batnaði örlítið, þá áttu þær í vandræðum með skyttur gestanna sem settu niður hvert skotið á fætur öðru. Þrátt fyrir að vera með örugga forystu, hægðu gestirnir lítið á sér í sóknarleiknum og réðu heimamenn illa við þær. Þrátt fyri r að heimamenn sýndu örlítinn meiri lit í sóknarleiknum, var það því miður fyrir heimamenn ekki nóg gegn góðu liði Hauka sem lönduðu öruggum 26-92 sigri.
 
 
Ljósmynd/ Rúnar Haukur Ingimarsson

Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson

Fréttir
- Auglýsing -