HomeFréttirGóður sigur Skallagríms á spræku lið FSu

Góður sigur Skallagríms á spræku lið FSu

 
Það var ljóst frá fyrstu mínútu að það yrði boðið upp á hörku slag þegar Valur Ingimundar mætti með sína lærisveina af Selfossi (FSu) í Fjósið á föstudagskvöld. Bæði lið ætluðu sér sigur enda mikið í húfi, barátta um heimleikjaréttinn og sæti í úrslitakeppninni.
FSu menn byrjuðu fyrsta leikhlutann með sniðskoti frá Orra Jónssyni Lunddælingnum knáa frá Lundi en Darrell Flake skoraði um hæl fyrir Skalla. Skallagrímsmenn spiluðu flotta vörn fyrstu mínúturnar (eða handboltavörn eins og Valur Ingimundar þjálfari FSu vildi meina). Sowa var með flottar hreyfingar í sókninni og kom Sköllum fljótt í 8-2. FSu menn voru ekki alveg að finna körfuna á tímapunkti en spiluð samt stífa vörn á Skallana. En samt ekki nóg því Sowa var sterkur að finna körfuna. FSu menn fóru að sækja meira að körfu Skalla og náðu að fiska villur sem skilaði þeim stigum af vítalínunni. En það dugði þeim skammt því Skallar kláruðu fyrsta leikhlutann nokkuð sannfærandi 23-14.
 
Skallar héldu áfram að sækja í öðrum leikhluta. Með Darrell Flake fremstan í flokki komust Skallar fljótt í 27-12. En FSu eru seigir og fóru að spila handboltavörn og sækja vel á körfu Skallanna og breytu stöðinni í 27-20. Þá vakna Skallar aftur. Með Flake fremstan í flokki í sókninni og Trausta í vörninni snéru Skallar þessu fljótt við. Kristján var með flottan þrist og Birgir og Óðinn voru líka sterkir á þessum kafla og skoruðu góðar körfur. Sóknarleikur FSu manna einkenndist mikið af einstaklingsframtaki og lá leikstjórnanda þeirra töluvert mikið á boltanum á lokamínútum annars leikhluta sem reyndist Sköllum vel því staðan í hálfleik var 49-31 Sköllum í vil.
 
FSu menn komu sterkari til leiks í þriðja leikhluta og sóttu vel að körfu Skallana. Skallar misstu boltann trekk í trekk og villurnar hrönnuðust upp. Birgir fékk að líta á sína fjórðu og Óðinn líka. Allt í einu voru FSu menn búnir að breyta stöðinni í 49-40. En Skallar vöknuðu loksins og náðu fljótlega aftur völdum á vellinum með Sowa, Flake og Trausta sterka í sókninni 55-40 og Kristján var að finna samherjana vel. FSu menn fundu litlar sem engar glufur í vörn Skallanna. En Orri náði þó að pota einum þrist um leið og skotklukkan rann út. Skallar létu það ekkert trufla sig heldur gáfu bara meira í með Finn Jóns sterkan í vörninni. Síðasta smiðshöggið í þriðja leikhluta rak svo Kristján með flottum þrist 62-46.
 
Fjórði og síðasti leikhlutinn var eiginlega bara formsatriði fyrir Skallana að klára. FSu menn áttu fá svör við leik Skallanna. Dómarar leiksins leyfðu óþarflega mikla hörku í leiknum og var því spilað fast á köflum. Leikhlutinn endar svo á því að það er dæmd óíþróttamannsleg villa á FSu. Kristján fór á línuna og kláraði leikinn 84-69. Góður sigur á spræku liði FSu sem hættu aldrei að spila.
Stigahæstu menn Skallagríms voru Darrel Flake með 31 stig 16 fráköst og 2 varinn skot- Kristján Andrésson með 16 stig og 7 stoðsendingar. Birgir Þór Sverrisson með 12 stig 5 stoðsendingar og 2 stolna bolta- Mateuz Zowa með 12 stig 9 fráköst og 3 varinn skot- Trausti Eiríksson með 11 stig 13 fráköst 5 stoðsendingar og 3 varin skot
 
Hjá FSu voru Valur Orri Valsson með 23 stig og 9 stoðsendingar Guðmundur Gunnarsson með 13 stig og 3 stolna bolta. Orri Jónsson 10 stig og 2 varin skot.
 
 
Mynd: Sigga Leifs
 
Umfjöllun: Ebbi
Fréttir
- Auglýsing -