HomeFréttirMaryland tapaði á útivelli í gær

Maryland tapaði á útivelli í gær

 
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Maryland lentu í hörkuleik í bandaríska háskólaboltanum í gær þegar liðið heimsótti Boston College. Lokatölur í leiknum voru 76-72 Boston í vil þar sem Haukur fékk að spreyta sig í 11 mínútur.
Haukur gerði 2 stig í leiknum á þessum 11 mínútum, tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu. Þá náði kappinn einnig að snapa sér tvær villur en stigahæstur að þessu sinni í liði Maryland var byrjunarliðsframherjinn Dino Gregory með 15 stig.
 
Maryland er nú í 7. sæti ACC-riðilsins með 5 sigra og 5 tapleiki en á toppi riðilsins er Duke háskólinn með 9 sigra og 1 tapleik. Næsti leikur Maryland er þann 15. febrúar gegn Virginia Tech skólanum.
 
Fréttir
- Auglýsing -