Það var spennusigur sem KR landaði gegn Haukum í Iceland Express deild kvenna í dag. Lokastaðan 67-66 KR í vil eftir framlengdan leik. Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í liði KR í dag með 24 stig og 10 fráköst.
Hjá Haukum var Kathleen Snodgrass með 18 stig og 12 fráköst. Staðan er samt óbreytt í A-riðlinum, Hamar á toppnum, Keflavík í 2. sæti, KR í 3. sæti og Haukar í 4. sæti.





