Í dag áttust við Haukar og KR í DHL-höllinni í 17. Umferð Iceland-Express deildar kvenna. KR liðið var í 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn með 18 stig og Haukar í því fjórða með 12 stig og það var því ljóst að Haukar þurftu á sigri að halda til að eiga möguleika á 3. sætinu því aðeins 3 umferðir eru nú eftir af deildarkeppninni.
Fyrstu stigin komu frá Haukum en það var Íris sem skoraði þau. Næstu stig komu frá KR-ingum og munaði aldrei miklu á liðnunum fyrr en í stöðunni 16-10 fyrir KR en þá skoruðu Haukar 9 stig í röð og höfðu forystuna að loknum fyrsta leikhluta.
Haukar héldu forystunni allan 2. leiklutann en KR-ingar hleyptu þeim þó aldrei of langt frá sér og þær náðu að minnka muninn niður í 2 stig með þrist frá Chazny Morris rétt áður en flautað var til hálfleiks.
KR-ingar skoruðu fyrstu stig seinni hálfleiks og komust síðan yfir með þrist frá Hildi Sigurðardóttur og staðan þá 37-36 fyrir KR. Síðan kom góður kafli hjá Haukum þar sem þær skoruðu 12 stig í röð og komu stöðunni í 37-49 um miðjann þriðja leikhluta. Staðan að honum loknum var 42-51.
Við tók æsispennandi 4. leikhluti þar sem KR-ingar náðu að minnka muninn niður í 1 stig og jafna síðan leikinn 58-58 þegar um 2 mínútur voru eftir af leiknum. Næstu 4 stig komu af vítalínunni, tvö hjá hvoru liði og því ennþá jafnt þegar 1 mínúta var eftir. KR-ingar komust síðan tveimur stigum yfir og Haukar fóru í sókn en Katie klikkaði úr skoti. Signý Hermannsdóttir tók frákastið og Ragna Margrét braut á henni, hennar fimmta villa og þurfti hún því að yfirgefa völlinn eftir frábæra frammistöðu. Signý hittu aðeins úr öðru skotinu og munaði því 3 stigum. Haukar brunuðu í sókn þar sem aðeins voru 9 sek eftir af leiktímanum, boltinn barst til Írisar sem á ævintýralegan hátt setti niður erfitt 3ja stiga skot og því þurfti að framlengja leikinn.
Fyrstu stig framlengingarinnar komu ekki fyrr en eftir 4 mínútur en það var þristur frá KR. Íris skoraði síðan úr tveimur vítum og staðan orðin 66-65 fyrir KR. María Lind fékk síðan tvö vítaskot en þau fóru hvorugt ofan í og Haukar þurftu því að brjóta til að fá boltann aftur. Hildur Sigurðar setti hins vegar aðeins niður annað vítið og munaði því tveimur stigum á liðunum og átta sek. eftir. Brotið var á Írisi þegar ein sek. var eftir en hún hitti aðeins úr öðru vítinu og eins stigs sigur KR því staðreynd, 67-66.
Heildarskor:
KR: Margrét Kara Sturludóttir 24/10 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 14/5 fráköst/9 stoðsendingar, Hafrún Hálfdánardóttir 8/5 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 8/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 6/12 fráköst, Helga Einarsdóttir 4/5 fráköst, Chazny Paige Morris 3, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 0/5 fráköst, Svandís Anna Sigurðardóttir 0, Aðalheiður Ragna Óladóttir 0.
Haukar: Kathleen Patricia Snodgrass 18/12 fráköst, Íris Sverrisdóttir 14, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 13/19 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 12/9 fráköst, Margrét Rósa Hálfdánardótir 7/6 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 2/5 fráköst, Ína Salóme Sturludóttir 0, Lovísa Björt Henningsdóttir 0, Dagbjört Samúelsdóttir 0, Helga Jónasdóttir 0/8 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 0, Sara Pálmadóttir 0.
Dómarar: Jón Guðmundsson, Halldór Geir Jensson
Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Margrét Rósa Hálfdánardóttir í baráttunni við Hildi Sigurðardóttur og Margréti Köru Sturludóttur í DHL-Höllinni í dag.





