HomeFréttirShiran Þórisson: Vorum ákveðnir í að gera betur en fyrir vestan

Shiran Þórisson: Vorum ákveðnir í að gera betur en fyrir vestan

 
Neil Shiran Þórisson, þjálfari KFÍ, sagði eftir leikinn að villuvandræði liðsins hefðu verið dýrkeypt og sömuleiðis munar um það fyrir lið eins og KFÍ að Ari Gylfason sat heima í kvöld vegna veikinda þegar liðið lá 100-86 gegn KR í DHL-Höllinni. 
,,Það er náttúrulega mjög erfitt að hafa ekki þennan kjarna leikmanna eins og KR hefur, við lentum í villuvandræðum í þessum leik og það náttúrulega sást alveg bersýnilega þegar við þurftum að slaka á í vörninni, hefði ég haft meiri breidd í hópnum þá hefði þetta kannski farið öðruvísi. Reyndar vantar í hópinn en hann Ari Gylfa sem er veikur heima”.
 
Lið KFÍ situr sem stendur á botni deildarinnar með 3 sigra á meðan KR er í toppbaráttunni og hefur ekki tapað leik á heimavelli í deildinni í ár. Hvernig mótiverar liðið sig fyrir leik eins og þennan.
 
,,Það var auðvelt. Menn eru tilbúnir til þess að hefna fyrir ófarirnar fyrir vestan. Sá leikur er ennþá fersku í minni þannig að menn mættu hér ákveðnir í að gera betur en þar. Þannig að ég notaði það sem mótiveringu til þess að sýna okkar rétta andlit gegn þessu hörkuliði KR-inga”.

Myndasafn eftir Tomasz Kolodziejski frá leik KR og KFÍ

 
Mynd/ Tomasz: Shiran Þórisson notaði fyrri deildarleik liðanna til að espa sína menn upp í kvöld, það dugði þó ekki til að þessu sinni.
 
Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -