Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var brattur eftir góðan skyldusigur KR á KFÍ í kvöld. Hrafn spilaði á mörgum mönnum en hvíldi landsliðsmennina Pavel Ermolinskij og Fannar Ólafsson. KR hafði því ekki þá yfirburði sem mætti ætla út frá stigatöflunni í deildinni. Var þetta ekki óþarflega jafn leikur?
,,Ég veit ekki hvað skal segja, þeir spiluðu bara mjög vel. Þetta KFÍ lið er með marga mjög skemmtilega leikmenn innanborðs og þeir eru að eiga við það að hafa þurft að gera of margar breytingar á tímabilinu. Ég verð að segja eins og er, ég held t.d. að ferð Hamarsmanna vestur núna á næstu dögum verði ansi áhugaverð. Þetta KFÍ-lið er ekki að fara að leggjast svo auðveldlega núna í síðustu umferðunum. Auðvitað hefðum við viljað vinna þetta stærra og fá þennan mun fyrr. Við fórum inn í leikinn með ákveðnar áherslur, við spiluðum ekki á öllum mönnunum okkar og við stöndum og föllum með því”.
Þú varst óhræddur við það að gefa yngri mönnum tækifæri og tíma í leiknum í kvöld.
,,Já við erum með fleiri leikmenn sem geta spilað og hluti af þessari íþrótt er bara lífeðlisfræði og það kemur að því að þetta fer að höggva í lappirnar á fólki að þurfa að spila kannski á 7, 8 mönnum og það er verið að atast í þér allan leikinn. Þeir stóðu það bara mjög vel af sér til að byrja með. Svo bara gerist það sem gerist oft. Ég hef oft komið hingað með Þórsliðið og verið yfir í þrjá leikhluta. Svo er bara bensínið búið. Eigum við ekki bara að segja að ég hafi lært á því að hafa komið með þórsliðið hingað og að fá KFÍ liðið hingað dálítið oft og sjá þetta gerast.
Eru Fannar og Pavel meiddir eða fengu þeir einfaldlega að hvíla í kvöld?
,,Þetta eru bara menn sem eru búnir að vera í miklu álagi og eru mikilvægir í okkar leik. Ef ég hefði séð leikinn fara frá okkur hefði ég kannski kallað til þeirra en ég hafði alla trú á strákunum í gegnum þetta”.
Mynd/ Tomasz: Hrafn og KR-ingar eru ósigraðir á heimavelli í deildinni.
Gísli Ólafsson





