Barcelona varð í gær bikarmeistari á Spáni eftir sigur á Real Madrid 60-68 í jöfnum og spennandi leik. Alan Anderson var stigahæstur í sigurliði Börsunga með 19 stig og 4 fráköst en atkvæðamestur hjá Madríd var Ante Tomic með 12 stig og 7 fráköst.
Spænska bikarkeppnin heitir ,,Copa del Rey” og er oftar en ekki kölluð Konungsbikarinn hér á Íslandi en keppt er um Konungsbikarinn á Spáni í körfubolta, fótbolta og handbolta.
Þetta árið voru bikarúrslitin á Spáni í beinni útsendingu í 80 löndum og í fyrsta sinn var leiknum lýst á ensku hjá ACB sjónvarpinu í beinni á netinu.
Mynd/ Fyrirliðinn Roger Grimau tók við bikarnum fyrir Börsunga en hann skoraði 4 stig í leiknum.





