HomeFréttirÚrslit: Keflavík vann eftir framlengingu að Ásvöllum

Úrslit: Keflavík vann eftir framlengingu að Ásvöllum

 
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld. Njarðvík, Stjarnan og Keflavík náðu sér í tvö dýrmæt stig en framlengja varð í Hafnarfirði þegar Keflvíkingar mættu í heimsókn að Ásvöllum. Gestirnir úr Reykjanesbæ reyndust sterkari í framlengingunni og unnu að lokum 99-106.
Fjölnir 82-94 Njarðvík
Christopher Smith fór mikinn fyrir Njarðvík gegn sínum gömlu félögum í Fjölni, skoraði 28 stig, tók 15 fráköst og varði 4 skot. Hjá Fjölni var Ingvaldur Magni Hafsteinsson atkvæðamestur með 23 stig og 7 fráköst.
 
Stjarnan 79-70 Grindavík
Daníel Guðmundsson var stigahæstur hjá Stjörnunni með 22 stig en hjá Grindavík var Þorleifur Ólafsson með 13 stig.
 
Haukar 99-106 Keflavík
Boðið var upp á framlengdan spennuleik að Ásvöllum, staðan eftir venjulegan leiktíma var 85-85. Keflvíkingar hrukku í gang í framlengingunni og höfðu að lokum mikilvægan sigur í toppbaráttunni. Thomas Sanders gerði 25 stig og tók 7 fráköst hjá Keflavík en hjá Haukum var Semaj Inge ,,á eldi” með 32 stig, 15 fráköst og 8 stoðsendingar.
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ www.vf.is  Thomas Sanders var atkvæðamestur Keflvíkinga að Ásvöllum í kvöld.
Fréttir
- Auglýsing -