HomeFréttirNjarðvíkingar grimmari í Grafarvogi (Umfjöllun)

Njarðvíkingar grimmari í Grafarvogi (Umfjöllun)

 
Christopher Smith sýndi enga linkind gegn gömlu félögum sínum í Fjölni í kvöld þegar Njarðvík vann Grafarvogsliðið 82-94 í Iceland Express deild karla. Smith gerði 28 stig í leiknum, tók 15 fráköst og varði 4 skot í liði Njarðvíkinga sem fengu myndarlegt framlag frá sínum erlendu leikmönnum í kvöld. Hjá Fjölni var Ingvaldur Magni Hafsteinsson fremstur í flokki með 23 stig og 7 fráköst.
Á meðan liðin þreifuðu fyrir sér í upphafi leiks sýndi Páll Kristinsson fínar rispur í liði gestanna sem og Ægir Þór Steinarsson í liði Fjölnis. Njarðvíkingar urðu þó fyrri til að sverfa til stáls, Jóhann Árni Ólafsson kom með tvo þrista á fyrstu augnablikunum og sá síðari breytti stöðunni í 14-20 Njarðvíkingum í vil.
 
Varnarleikur heimamanna var ekki í sparifötunum fyrstu tíu mínúturnar og því leiddu grænir gestir 16-28 eftir fyrsta leikhluta sem þeir lokuðu með svæðisvörn en skiptu strax aftur í maður á mann í upphafi annars leikhluta.
 
Þrír þristar komu á færibandi hjá Fjölnismönnum í upphafi annars leikhluta og sá síðasti frá Arnþóri Guðmundssyni minnkaði muninn í 25-28. Við þetta færðist aukin harka í varnarleik beggja liða en gulir héldu Njarðvíkingum stigalausum fyrstu tvær og hálfa mínútuna í öðrum leikhluta.
 
Gestirnir fundu þó taktinn að nýju og juku muninn í 32-42 en heimamenn minnkuðu muninn í 37-44 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Ingvaldur Magni Hafsteinsson var með 9 stig og 4 fráköst hjá Fjölni í leikhléi en hjá Njarðvíkingum var Jonathan Moore með 11 stig og 5 stoðsendingar.
 
Undir lok annars leikhluta tók fórnfús liðsmaður Njarðvíkinga á rás eftir boltanum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á varamannabek Fjölnis og fyrir honum urðu Bragi Magnússon aðstoðarþjálfari Fjölnis og ungur drengur sem var nokkuð skelkaður við byltuna. Fyrstur á staðinn var vitaskuld gleðigjafinn Raggi Torfa sem tók snáðann í fangið, stappaði í hann stálinu og ekki var að sjá að guttanum yrði meint af volkinu og ljóst að í Grafarvogi er í bígerð ungur maður sem vílar það ekki fyrir sér að taka úrvalsdeildarleikmenn á ,,kassann.”
 
Skotnýting heimamanna var dræm í fyrri hálfleik, 35% í teigskotum og 23% í þriggja stiga skotum svo það var kærkomið þegar Magni Hafsteinsson setti einn slíkan og minnkaði muninn í 49-57. Jóhann Árni Ólafsson fór tiltölulega snemma á bekkinn í þriðja leikhluta með sína fjórðu villu en erlendu leikmennirnir Nenad, Chris og Jonathan voru að skila sínu í liði gestanna, svo djarfir stóðu þeir vaktina í kvöld að ætla mætti að þeim hafi verið hótað kjaraskerðingu eftir feluleikinn sem þeir unnu í KR leiknum.
 
Áfram hélt Magni að skila fyrir Fjölni og virtist á of löngum köflum vera einn um þá iðju í liði heimamanna. Þegar skammt var til loka þriðja leikhluta tók Örvar Kristjánsson leikhlé fyrir Fjölni og mundaði hárþurrkuna yfir leikmönnum sínum. Þrumuræðan skilaði árangri því Fjölnir breytti stöðunni úr 51-68 í 60-69 og tóku þar með 9-1 áhlaup. Jonathan Moore spillti þó gleðinni með þrist fyrir Njarðvík fjórum sekúndum fyrir lok leikhlutans og gestirnir leiddu því 60-72 fyrir lokasprettinn.
 
Christopher Smith tók vel við sér í síðari hálfleik og reyndist Fjölnismönnum illur viðureignar. Brandon Springer kveikti þó smá von er hann minnkaði muninn í 66-76 með troðslu fyrir gula en það var sama hvað heimamenn reyndu, Njarðvíkingar höfðu stjórnina og héldu gestgjöfum sínum ávallt fjarri. Lokatölur 82-94 Njarðvíkingum í vil og Fjórði deildarósigur Fjölnis í röð staðreynd sem og fjórði tapleikur liðsins í röð á heimavelli.
 
Fjölnir hefur 10 stig í 11. sæti deildarinnar en með sigrinum í kvöld færðust Njarðvíkingar upp í 9. sæti með 14 stig.
 
 
Heildarskor:
 
Fjölnir: Ingvaldur Magni Hafsteinsson 23/7 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 19/5 fráköst/6 stoðsendingar, Brandon Ja Juan Springer 14/9 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 11, Jón Sverrisson 6, Arnþór Freyr Guðmundsson 5/4 fráköst, Sindri Kárason 2, Hjalti Vilhjálmsson 2, Andrew Nicholas Bennett 0/4 varin skot, Einar Þórmundsson 0, Elvar Sigurðsson 0, Sigurður Þórarinsson 0.
 
Njarðvík: Christopher Smith 28/15 fráköst/4 varin skot, Melzie Jonathan Moore 23/8 fráköst/6 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 15, Nenad Tomasevic 11, Páll Kristinsson 7, Hjörtur Hrafn Einarsson 4, Rúnar Ingi Erlingsson 4, Friðrik E. Stefánsson 2, Óli Ragnar Alexandersson 0, Ólafur Helgi Jónsson 0, Guðmundur Jónsson 0, Egill Jónasson 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Davíð Tómas Tómasson
 
Myndir og umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -