HomeFréttirGóður Stjörnusigur (Umfjöllun)

Góður Stjörnusigur (Umfjöllun)

 
Búist var við hörkuleik í Ásgarði í kvöld þar sem Stjörnumenn tóku á móti Grindvíkingum í Iceland Express deild karla. Fyrir leikinn höfðu Garðbæingar unnið tvo leiki í röð og sátu í 5. sæti en Grindvíkingar höfðu hins vegar tapað þremur leikjum í röð og höfðu dottið niður í þriðja sæti eftir frábæra byrjun í deildinni. Bæði lið vildu því ólm ná í sigur.
 
Stjörnumenn virtust í upphafi staðráðnir í því að halda sigurgöngunni áfram því þeir léku glimrandi körfubolta. Sóknarleikur þeirra einkenndist af þolinmæði og útsjónarsemi og vörnin virkaði ógnarsterk. Grindvíkingar áttu fá svör og virtust hreinlega ekki mættir til leiks í fyrsta leikhluta. Suðurnesjamenn gerðu fjöldann allan af byrjendamistökum og gengu heimamenn á lagið. Staðan í lok fyrsta fjórðungs var 27-14 Stjörnunni í vil og endurspeglaði hún vel gang leiksins.
 
Annar leikhluti hélt áfram þar sem sá fyrsti endaði. Gestirnir héldu áfram að kasta boltanum frá sér og Stjörnumenn höfðu tögl og hagldir í leiknum. Stjarnan komst í 20 stiga forystu um miðjan leikhluta en Grindvíkingum tókst þó að vinna sig betur inn í leikinn þegar hálfleikur nálgaðist og með góðu 9-3 áhlaupi tókst þeim að minnka muninn í 12 stig, staðan var því 40-28 í hálfleik.
 
Það var allt annað Grindavíkurlið sem mætti til leiks í seinni hálfleik. Gestirnir komu dýrvitlausir til leiks og voru fljótlega búnir að minnka muninn í 5 stig þegar Teitur Örlygsson ákvað að taka leikhlé. Stjörnumenn náðu aðeins að laga leik sinn eftir það og náðu aftur að auka forskotið. Grindvíkingar voru þó aldrei undan og staðan eftir þrjá leikhluta var 57-49 og ljóst að lokaleikhlutinn gæti orðið mjög spennandi.
 
Lokafjórðungurinn var leikinn af mikilli hörku á báða bóga. Grindvíkingar gerðu hvað þeir gátu til að saxa á forskot heimamanna en Garðbæingar héldu sér þó alltaf nokkrum stigum á undan. Þegar Stjarnan hafði sjö stiga forskot braut Ólafur Ólafsson á Daníeli Guðmundssyni í þriggja stiga skoti. Ólafur virtist eitthvað ósáttur við dóminn og hlaut tæknivillu að launum. Stjarnan fékk því fimm vítaskot auk boltans. Daníel og Justin Shouse settu fjögur skot niður og eftir þetta atvik varð róðurinn þungur fyrir gestina. Stjörnumenn sigldu því að lokum öruggum 79-70 sigri í höfn.
 
Það var fyrst og fremst góð vörn heimamanna sem gerði gæfumuninn í kvöld, því sóknarleikur liðanna tveggja var oft ekki upp á marga fiska. Stjörnumenn halda áfram á góðu skriði eftir áramót með sínum þriðja sigurleik í röð en Grindvíkingar þurfa að bíta í það súra epli að tapa sínum fjórða leik í röð. Stigahæstur Stjörnunnar að þessu sinni var Daníel Guðmundsson með 22 stig en Daníel var frábær bæði í vörn og sókn. Justin Shouse skoraði 13 stig og Renato Lindmets gerði 11 stig auk 14 frákasta. Stigahæstur Grindvíkinga var Þorleifur Ólafsson með 13 stig en Ryan Pettinella og Kevin Sims voru með 12 stig hvor.

Myndasafn úr leiknum eftir Tomasz

 
Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Ólafur Aron Yngvason sækir að körfu Grindavíkur í leiknum.
 
Umfjöllun: Elías Karl Guðmundsson
Fréttir
- Auglýsing -