Haukar og Keflavík mættust á Ásvöllum fyrr í kvöld og höfðu gestirnir betur eftir að Haukar unnu upp 19 stiga forskot Keflvíkinga og knúðu fram framlengingu. Með sigrinum komust Keflvíkingar í 3. sæti deildarinnar en Haukar halda því 6. um sinn.
Gestirnir úr Keflavík komu vel stemmdir til leiks og komust í 0-8 áður en Haukar náðu að komast á blað. Varnarleikur Hauka var alls ekki góður og áttu Haukamenn í basli með Sigurð Þorsteinsson sem tók mikið pláss í teig heimamanna. Keflavík leiddi með sex stigum eftir leikhlutann 14-20.
Keflavík hélt Haukum frá sér í öðrum leikhluta og í hvert skipti sem að Haukar náðu að naga upp muninn og freista þess að komast yfir spýttu Keflvíkingar í lófana og juku muninn aftur. Keflvíkingar fórum með átta stiga forskot inn í hálfleikinn og miðað við leika Hauka í öðrum leikhluta var margt sem benti til þess að heimamenn myndu gera spennandi leik úr þessu en allt kom fyrir ekki.
Keflvíkingar byrjuðu seinnihálfleikinn með miklum látum og skoruðu fyrstu fimm stig leikhlutans og leiddu með 13. Smám saman héldu þeir áfram að auka muninn og náðu mest 19 stiga forskoti og þannig var munurinn á liðunum eftir þriðja leikhluta. Þegar ekkert benti til þess að Haukar myndu ógna forskoti Keflvíkinga hrökk vörn þeirra í gang og skotin fóru að detta niður. Smátt og smátt minnkuðu þeir muninn og á endanum voru þeir búnir að jafna leikinn 85-85.
Haukar áttu boltann þegar 29 sekúndur voru til loka leiksins og héldu í sókn. Semaj Inge kom upp með boltann líkt og alltaf þegar svona lítið er eftir af leikhlutunum og átti að freista þess að keyra upp að körfunni og koma honum í netið eða finna lausan mann í opið skot. Inge lét tímann líða og keyrði upp að körfunni, tók pivot skref á við vítalínuna, rann til og datt í gólfið. Dæmt var skref á Inge og Keflavík fékk boltann þegar fjórar sekúndur voru eftir leiksins. Kjörið tækifæri Hauka til að stela leiknum rann út í sandinn og Keflavík tók leikhlé.
Boltinn barst til Magnúsar Gunnarssonar fyrir utan þriggja stiga línuna og hann óð upp í skotið. Haukur Óskarsson leikmaður Hauka elti hann uppi, stökk upp í skotið og svo virtist sem að hann hafi brotið á honum en dómarar leiksins dæmdu ekki og skot Magnúsar geigaði og ljóst að grípa þurfti til framlengingar.
Keflvíkingar voru betri að öllu leiti í framlengingunni og þegar að leikmenn Hauka fóru að týnast útaf með fimm villur fór ekki á milli mála hvar sigurinn myndi enda. Stemningin sem einkennt hafði leik Hauka í fjórða leikhluta var horfin og Keflvíkingar gegnu á lagið. Fljótlega voru gestirnir komnir með 11 stiga forskot og áður en yfir lauk náðu Haukar að naga muninn í sjö stig. Leikurinn endaði með þeim mun eða 99-106.
Thomas Sanders var stigahæstur Keflvíkinga með 25 stig og 7 fráköst. Sigurður Þorsteinsson var með 24 stig og 13 fráköst og Gunnar Einarsson gerði 20 stig.
Hjá Haukum var Semaj Inge með 35 stig og 15 fráköst og Gerald Robinson var með 20 stig og 11 fráköst.
Mynd/ Thomas Sanders var öflugur fyrir Keflavík gegn Haukum – [email protected]





