HomeFréttirBobcats burstuðu Lakers

Bobcats burstuðu Lakers

 
Sex leikir fóru fram í NBA deildinni nótt þar sem bæði liðin frá Los Angeles fengu skell á útivelli. Lakers töpuðu 109-89 gegn Charlotte Bobcats og Milwaukee rassskellti Clippers 102-78.
Charlotte 109-89 LA Lakers
Gerald Wallace gerði 20 stig og tók 11 fráköst í liði Bobcats en Kobe Bryant var stigahæstur hjá gestunum með 20 stig.
 
Milwaukee 102-78 LA Clippers
Baron Davis gerði 22 stig fyrir Clippers en Carlos Delfino var með 26 stig og 9 fráköst hjá Bucks.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
New Jersey 85-102 San Antonio
Detroit 79-94 Atlanta
Minnesota 81-95 Portland
Houston 121-102 Denver
 
Mynd/ Gerald Wallace setti 20 stig á Lakers í nótt
 
Fréttir
- Auglýsing -