HomeFréttirSundsvall með 8 stiga forskot í Svíþjóð: Jakob með 19 gegn Solna

Sundsvall með 8 stiga forskot í Svíþjóð: Jakob með 19 gegn Solna

 
Logi Gunnarsson hafði ekki erindi sem erfiði með Solna Vikings í kvöld þegar liðið heimsótti Hlyn og Jakob í Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Sundsvall hafði 96-82 sigur í leiknum og hafa nú 8 stiga forskot á toppi deildarinnar. 
Jakob Örn Sigurðarson gerði 19 stig í leiknum fyrir Sundsvall og 4 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson bætti við 12 stigum, 11 fráköstum og 5 stoðsendingum en stigahæstur hjá Sundsvall var Johann Jeansson með 22 stig. Logi skoraði 5 stig fyrir Solna og gaf 4 stoðsendingar en stigahæstur var Adam Constantine með 24 stig og 10 fráköst.
 
Þá töpuðu Helgi Magnússon og Uppsala á heimavelli gegn Jamtland Basket. Lokatölur 71-95 Jamtland í vil þar sem Helgi skoraði 9 stig og tók 5 fráköst í liði Uppsala.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -