HomeFréttirWade sjóðandi gegn Pacers

Wade sjóðandi gegn Pacers

 
Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Dwyane Wade fór mikinn þegar Miami Heat lögðu Indiana Pacers á útivelli. Wade var kominn með 22 stig í fyrsta leikhluta og staðan 41-19 Miami í vil en Indiana bitu frá sér en urðu þó að sætta sig við 103-110 tap á heimavelli.
Roy Hibbert gerði 18 stig og tók 7 fráköst í liði Indiana en Wade var stigahæsti maður vallarins með 41 stig, 12 fráköst og 3 stoðsendingar og ein þeirra var eins löng og völ verður á, alley-up stoðsending yfir þveran og endilangan völlinn.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Chicago 106-94 Charlotte
Memphis 102-91 Philadephia
Oklahoma 126-96 Sacramento
Phoenix 102-101 Utah
Golden State 102-89 New Orleans
 
8 efstu liðin á austur- og vesturströnd deildarinnar:
 
Austur:
Boston
Miami
Chicago
Atlanta
Orlando
New York
Philadelphia
Indiana
 
Vestur:
San Antonio
Dallas
LA Lakers
Oklahoma
New Orleans
Portland
Denver
Utah
 
Mynd/ Wade fór mikinn gegn Pacers í nótt
 
Fréttir
- Auglýsing -