HomeFréttirAnnað tap hjá Maryland

Annað tap hjá Maryland

 
Maryland tapaði sínum öðrum leik í röð í bandarísku háskóladeildinni í körfuknattleik í nótt þegar liðið heimsótti Virginia Tech. Lokatölur leiksins voru 91-83 Virginia Tech í vil þar sem Haukur Helgi Pálsson lék í 17 mínútur fyrir Maryland.
Haukur skoraði 3 stig í leiknum og tók 4 fráköst og þá var hann einnig með 1 stoðsendingu. Með ósigrinum í nótt er Maryland komið með neikvætt vinningshlutfall, 5 sigrar og 6 tapleikir og er liðið í 7. sæti í ACC riðlinum en Duke skólinn er sem fyrr á toppnum með 10 sigra og 1 tapleik.
 
Fréttir
- Auglýsing -