Einn leikur er á dagskránni í dag í 1. deild karla þegar Höttur á Egilsstöðum tekur á móti Laugdælum kl. 18:30. Bæði lið hafa 8 stig við botn deildarinnar en á botninum eru Ármenningar með 4 stig og Leiknir í næstneðsta sæti með 6 stig. Það er því til mikils að vinna á Egilsstöðum í kvöld og hægt fyrir sigurvegarann að fara langt með að tryggja sæti sitt í deildinni.
Þá er einn leikur í bikarkeppni yngri flokka þegar Haukar taka á móti KR í stúlknaflokki kl. 19:30 að Ásvöllum í Hafnarfirði.





