HomeFréttirDómarar í bikarúrslitum: Kristinn í Höllina í ellefta sinn

Dómarar í bikarúrslitum: Kristinn í Höllina í ellefta sinn

Bikarúrslitaleikirnir verða í höndum fremstu dómara landsins um komandi helgi. Eins og ákveðið var þá hafa þrír dómarar verið að dæma í karlaflokki bikarkeppninnar enda þriggja dómara kerfið víðast hvar í Evrópu við lýði. Í kvennaflokki eru þó tveir dómarar og í þetta sinn verða það Eggert Þór Aðalsteinsson og Einar Þór Skarphéðinsson sem dæma munu kvennaviðureign KR og Keflavíkur.
Eggert Þór er í þriðja sinn að dæma bikarúrslitaleik kvenna (2001,2005) og Einar Þór var dómari á bikarúrslitaviðureign KR og Keflavíkur árið 2009 en það var jafnframt hans fyrsti bikarúrslitaleikur. Þá verður Guðni Eiríkur Guðmundsson eftirlitsmaður á leiknum.
 
Í karlaflokki verða þeir Sigmundur Már Herbertsson, Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson dómarar á leiknum og Pétur Hrafn Sigurðsson fyrrum framkvæmdastjóri KKÍ verður eftirlitsmaður.
 
Sigmundur Már er að dæma sinn sjötta bikarúrslitaleik í karlaflokki en hans fyrsti bikarúrslitaleikur hjá körlunum var árið 2000. Sigmundur mætir núna í níunda sinn til að dæma í bikarúrslitum en kollegi hans Kristinn Óskarsson er að fara að dæma sinn ellefta bikarúrslitaleik, sá fyrsti árið 1991. Einu sinni áður hefur Björgvin Rúnarsson dæmt bikarúrslitaleik í karlaflokki en það var árið 2005.
 
Leikirnir um helgina verða því í góðum höndum okkar fremstu dómara og undir ströngu eftirliti þeirra Guðna og Péturs.
 
Mynd/ Félagarnir Sigmundur og Kristinn mæta galvaskir í Höllina á morgun. 
Fréttir
- Auglýsing -