Gulir og glaðir eru búnir að skipuleggja bikardaginn sinn í þaula og hefst bikarfjörið strax í kvöld með Pub-Quis spurningakeppni í Framsóknarhúsinu að Víkurbraut í Grindavík. Húsið opnar 20:30 og keppnin hefst kl. 21:00. Spurningum um grindvískan körfuknattleik í gegnum tíðina, kastað fram af spyrli keppninnar, Davíð Arthúr. Dómari og höfundur spurninga er gamla goðið Eyjólfur Guðlaugsson. 1000 kr. inn og vegleg verðlaun í boði.
Þá er það laugardagurinn, sjálfur bikardagurinn og hann verður svohljóðandi hjá Grindvíkingum:
Laugardagur 19.febrúar
Rúta (60 manna) fer frá íþróttahúsinu í Grindavík kl. 12:00
Þróttaraheimilið í Laugardalnum sem er í mínútu göngufjarlægð frá Laugardalshöllinni, verður bækistöð okkar Grindvíkinga. Húsið opnar kl. 12:00
Leibbi, Gauti og Bjarki sjá um að grilla hamborgara ofan í mannskapinn gegn vægu gjaldi. Grillað verður til kl. 15:00
Kaldur, gos og ávaxtasafar sömuleiðis selt gegn vægu gjaldi.
Andlitsmálning
Leynigestur!
Síðasta æfing stuðningssöngva!
Grindvískir stuðningsmenn ganga fylktu liði í Laugardalshöllina um 15:30 og láta VEL í sér heyra! (Viðureign Grindavíkur og KR hefst kl. 16:00 í Laugardalshöll – miðasala á www.midi.is )
Deginum er svo lokað með dansiballi í Salthúsinu í Grindavík.
Húsið opnar kl. 00:00.
Miðaverð kr. 1500
Grindvíkingar taka skirt fram að þetta ball er fyrirfram ekki hugsað sem sigurhátíð, heldur er verið að fagna þeim góða árangri sem ferð í Laugardalshöllina vissulega er. Bikartitillinn sjálfur er bara bónus!
Sigurbjörn Daði





