HomeFréttirBrotthvarf Smith er taktísk breyting

Brotthvarf Smith er taktísk breyting

 
Njarðvíkingar segja uppsögn Christopher Smith vera taktíska breytingu á Njarðvíkurliðinu og hafa grænir þegar hafið leit að arftaka hans. Christopher kom til liðsins í lok október en hann er miðherji og skoraði rúm 20 stig fyrir liðið á þeim tíma sem hann lék með liðinu.
Þjálfarar liðsins hafa í hyggju taktíska breytingu og vonast menn til að nýr maður verði jafnvel kominn til liðs við félagið fyrir næsta leik sem fer fram 24.febrúar en þá mætast Njarðvík og Keflavík í Ljónagryfjunni en nú eru fjórar umferðir eftir af deildarkeppninni og Njarðvíkingar eru í þéttum pakka sem er að berjast um 6. til 11. sæti deildarinnar.
 
Frekari fréttir af nýjum leikmanni ættu að berast um miðja næstu viku.
 
Stjórn kkd UMFN
 
Þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkinga, www.umfn.is  
Fréttir
- Auglýsing -