Poweradebikarúrslitin fara fram í Laugardalshöll í dag og verða bæði karla- og kvennaleikur í beinni sjónvarpsútsendingu hjá RÚV. Þeir sem ætla sér hinsvegar að mæta í Höllina og upplifa fjörið frá fyrstu hendi geta tryggt sér miða á www.midi.is
Kvennaleikurinn hefst kl. 13:30 þar sem mætast KR og Keflavík, tvö sigursælustu kvennalið landsins. Strax að kvennaleiknum loknum eða kl. 16:00 hefst karlaleikurinn með viðureign KR og Grindavíkur.
Leið liðanna í úrslit 2011:
Konur:
KR 65-60 Hamar (undanúrslit)
KR 98-62 Skallagrímur
KR 76-46 Stjarnan
Keflavík 72-69 Njarðvík (undanúrslit)
Keflavík 78-61 Grindavík
Keflavík 89-61 Fjölnir
Karlar:
KR 81-69 Tindastóll (undanúrslit)
KR 82-74 Fjölnir
KR 99-74 Hamar
KR 101-68 Höttur
Grindavík 82-70 Haukar (undanúrslit)
Grindavík 91-56 Laugdælir
Grindavík 119-95 KFÍ
Grindavík 90-67 Þór Akureyri
Bikartitlar liðanna:
Konur:
KR: 10 (síðast bikarmeistarar árið 2009)
Keflavík: 11 (síðast bikarmeistarar árið 2004)
Karlar:
KR: 9 (síðast bikarmeistarar 1991)
Grindavík: 4 (síðast bikarmeistarar 2006)
Mynd/ Jón Björn: Þjálfararnir þrír, Hrafn Kristjánsson þjálfari KR liðanna fyrir miðju togast hér á við Helga Jónas Guðfinnsson þjálfara karlaliðs Grindavíkur og Jón Halldór Eðvaldsson þjálfara kvennaliðs Keflavíkur.





