Jón Halldór, þjálfari Keflavíkur hefur eftir daginn í dag unnið alla titla sem hægt era ð vinna með meistarflokk kvenna og má því segja að mikið afrek hafi verið unnið í laugardalshöllinni í dag. Keflavík mætti virkilega vel stemmt til leiks í þriðja leikhluta og náðu þar forskoti sem skilaði þeim nokkuð öruggum sigri, 62-72. Það lá því við að vita hvað Jón las yfir liðinu í hálfleik.
“Ég las ekkert yfir þeim. Ég talaði bara um að við þyrftum aðeins að spíta í og koma okkur á réttan vagn. Það eru tvær rútur, keflavíkur rútan og KR rútan. Við þurftum að koma okkur í okkar rútu. Við vorum inní rútunni hjá KR og vorum að fylgja þeim í fyrri hálfleik. Þær stjórnuðu leiknum og það er ekki það sem við leitum eftir.”
Jón Halldór sagði fyrir leik að hann hefði verið kenndur við Silver eftir seinustu bikarúrlsitaleiki en það ætti að breytast eftir daginn í dag.
“Núna er ég búinn að vinna allt sem hægt er að vinna í meistarflokki kvenna á íslandi. Þetta var eini bikarinn sem á átti eftir” Þú hlítur þá að fá eitthvað gull-nafn? “Það gefur auga leið”.
Birna Valgarðsdóttir
Birna Valgarðsdóttir var valin besti leikmaður bikarúrslitaleiks kvenna árið 2011 en hún skoraði 14 stig, hirti 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Birna var því að vonum nokkuð ánægð með afrek dagsins.
“Þetta er bara besti dagur ever”.
Birna leiddi liðið í þriðja leikhluta þegar það stakk KR af og náði sér í það forskot sem skilaði þeim sigrinum.
“Við forum bara inní klefa, ræddum málin og ákváðum að fara að spila okkar leik. Hætta að hugsa um bikarinn og vera bara glaðar, glaðar á að vera hérna. og það skilaði sér. Leiðheildin fór að skila sér þarna í þriðja leikhluta og þetta gerist ekki betra. Þetta er liðsíþrótt.”
Signý Hermannsdóttir spilaði stórt hlutverk í liði KR í dag sem tapaði bikarúrslitaleiknum gegn Keflavík í Laugardalshöllinni. Signy skilaði tvöfaldri tvennu eða 14 stigum og 12 fráköstum en það dugði ekki til.
“Ég er ekki viss hvað það var, en þær náðu að slá okkur út af laginu, ná í 10 stig og það er akkurat það sem ég held að sé munurinn þarna. Smá hikst í þriðja”.
Í svona stórum leik má spyrja sig hversu stórt hlutverk það spilar að ná upp stemmingunni með því forskoti sem Keflavík náði í þriðja leikhluta.
“Það á ekki að þurfa að vera það, við hefðum átt að geta komið okkur inn. Við hittum illa þarna í lokin . Við erum að berjast og spila vel en það bara dettur ekki. Ég held að það hafi ekkert endilega verið momentum. Það fer í báðar áttir. Við náðum bara ekki að klára þetta í dag”.
Gísli Ólafsson





