20 ára bið KR er á enda í bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands. KR lagði Grindavík að velli í Laugardalshöllinni í dag en liðið varð síðast bikarmeistari árið 1991. Að sama skapi mega Grindvíkingar sætta sig við silfrið úr bikarúrslitum annað árið í röð.
Lokatölur í bikarslagnum voru 94-72 KR í vil þar sem Pavel Ermolinskij var valinn maður leiksins með 21 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar en þetta mun jafnframt vera fyrsti stórtitill Pavels á ferlinum.
Kevin Sims var atkvæðamestur í silfurliði Grindavíkur með 18 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar.
Nánar síðar…
Mynd/ Jón Björn: Fannar Ólafsson smellir kossi á fyrsta bikartitil KR í 20 ár!





