HomeFréttirSagt eftir leik: Helgi, Fannar og Pavel

Sagt eftir leik: Helgi, Fannar og Pavel

 
Helgi Jónas Guðfinnson, þjálfari Grindavíkur var að vonum ekki ánægður með leik sinna manna eftir stórt tap fyrir KR í bikarúrslitunum í dag. Leikur Grindavíkur fell saman í þriðja leikhluta og endaði leikurinn með 22 stiga sigri KR. Veit Helgi Jónas hvað fór úrskeiðis?
“Nei því miður, þetta fór bara í sama farið og það hefur verið. Menn héldu að það væri bara nóg að spila einn hálfleik og voru bara sáttir. Svo hættum við bara að spila, við hættum að gera það sem við höfum lagt upp í vörninni og höfum gert í allan vetur. Menn fóru bara að gera sína egin hluti og það er bara óásættanlegt. Þeir fóru bara að gera það sem þeim datt í hug”.
 
Liðsmenn Grindavíkur létu mótlætið fara í taugarnar á sér og voru sjáanlega orðnir pirraðir strax í þriðja leikhluta.
“Auðvita fór þetta í pirrurnar á mönnum, menn eru að tapa bikarúrslitaleik og með svona karakterleysi, það er bara of mikið”.
Þorleifur Ólafsson spilaði ekkert með Grindavíkurliðinu í seinni hálfleik en haltraði fram og aftur fyrir aftan bekkinn og hvatti sína menn áfram. Hversu mikið áhrif hefur svona meiðsli í miðjum leik áhrif á liðið?
“Auðvita skilar það einhverju, en menn þurfa bara að stíga upp”.
 
Fannar Ólafsson lét mikið fyrir sér finna með 11 stig og 6 fráköst. Fannar stóð í ströngu að halda aftur af Ray Pettinella og skilaði sínu hlutiverki mjög vel. Í upphafi leiks létu stuðningsmenn Grindavíkur vel í sér heyra og yfirgnæfðu höllina með hvatningarópum.
“Við töluðum um það í upphitun að þeir mættu garga, hlægja og leika sér. Það yrði ekki svona í lok leiks. Við vorum mjög öruggir með að við ætliðum að klára þennan sigur í dag. Á meðan liðið er að spila svona vörn , sérstaklega eins og í seinni hálfleik, þá er mjög erfitt að vinna okkur”.
Fyrri hálfleikur og seinni hálfleikur voru eins og svart og hvítt. KR leiddi með einu stigi í hálfleik en bættu 21 stigi við forskotið í seinni hálfleik. Hver var munurinn á hálfleikjunum?
“Ég held að þeir hafi bara verið búnir á því. Mér fannst þeir bara vera orðnir svolítið þreyttir. Kaninn þeirra var farinn að hanga á boltanum, við vorum búnir að berja á honum allan leikinn., Pettinella var þreyttur líka, búinn að vera kljást við mig og Jón. Páll Axel, ég heyri að hann gangi ekki heill til skógar og þá er þetta bara orðið erfitt hjá þeim. Og lalli er ekki heldur heill, hann er búinn að vera meddur í allan vetur.
 
Við vissum það að ef við héldum tempóinu uppi í fyrri hálfleiknum þá myndu þeir brotna, við vorum bara að bíða eftir því. Við ræddum það inní klefa í hálfleik að þetta væri frábær staða að vera í , jafnt í hálfleik og við ætluðum að keyra á þá í seinni hálfleik”.
 
 
Pavel Ermolinskij var leikmaður leiksins með glæsilega þrefalda tvennu, 21 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar. Það var þó ekki þrefalda tvennan eða MVP nafnbótin sem var Pavel efst í huga.
 
“Titilinn er það sem skiptir máli í þessu, eins og ég sagði hérna áðan þá hefði mér verið alveg sama þá ég hefði gert mig að algjöru fífli hérna inná vellinu, með skammarlega frammistöðu. Á svona degi þá skiptir sigurinn máli. Að finnast manni vera hluti af svona sérstökum hóp sem vinnur saman. Það er gaman að fá einhver einstaklingsverðlaun en á svona degi finnur maður hvað það er vera hluti af skemmtilegum hóp”.
Munurinn á leiknum í fyrri og seinni hálfleik var ekki tilviljun. Lið KR steig upp og tók leikinn í sínar hendur.
“Við byrjuðum að gera það sem við erum vanir að gera, að stoppa, hlaupa og fá auðveld skot. Um leið og við gerum það þá er erfitt að stöðva okkur. Það er bara þannig. Ég held að við höfum bara unnið fyrir þessu, Við sýndum frábæran varnarleik og svo byrjuðum við að setja skot, þetta helst alltaf í hendur. Um leið og eitt byrjar að ganga byrjar hitt að ganga, þetta verður bara svona keðjuverkun”.
 
Stemmingin í höllinni í byrjun leiks var frábær en það byrjaði ekki að heyrast í stunðningsmönnum KR fyrr en leikur liðsins tók við sér í seinni hálfleik.
“Ég held að Grindvíkingar hafi mætt tilbúnir hvað varðar aðdáendur og stemmingu varðar en við bara kveiktum í þeim (stuðningsmönnum KR) með okkar leik. Það skilaði sér og það er alltaf gaman. Um leið og við náðum smá runni þarna í lok þriðja þá sá maður að stúkuna þagnaði þarna megin og allt varð vitlaust hérna megin. Það er mjög erfitt að koma til baka í svona aðstæðum fyrir hvaða lið sem er. Maður þarf að vera mjög sterkur andlega séð og við náðum bara að klára þetta”.
 
Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -