Í nótt fór fram Stjörnuleikur NBA deildarinnar þar sem mættust vesturströndin og austurströndin. Vesturströndin hafði betur í leiknum 148-143 og var Kobe Bryant leikmaður LA Lakers valinn besti maður Stjörnuleiksins.
Kobe gerði 37 stig í leiknum og var með 14 fráköst sem var viðeigandi því leikurinn fór fram í Staples Center, heimavelli Lakers og Clippers, í Los Angeles.
Á austurströndinni var LeBron James með þrennu, 29 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar. Aðeins einn annar leikmaður hefur náð þrennu í Stjörnuleik NBA, það ætttu einhverjir að muna eftir honum, hann heitir Michael Jordan. Amare Stoudemire leikmaður New York Knicks var einnig með 29 stig.





