Einn leikur fór fram í 1. deild karla í gær þegar Ármann tók á móti Skallagrím. Borgnesingar höfðu betur í leiknum með þeim afleiðingum að þeir felldu Ármenninga í 2. deild. Lokatölur í leiknum voru 72-91 Skallagrím í vil.
Ármann er á botni 1. deildar með 4 stig, í 9. sæti er Leiknir með 6 stig sem á enn möguleika á því að bjarga sér frá falli en Ármenningar ekki. Ármenningar geta jafnað Laugdæli að stigum en þá hafa Laugdælir betur innbyrðis. Liðin unnu sinn hvorn leikinn innbyrðis en Laugdælir unnu með 15 stig mun á heimavelli á meðan Ármann vann aðeins með 8 stiga mun í Laugardalshöll. Laugvetningar standa því betur að vígi en eru þó ekki búnir að tryggja sæti sitt í deildinni.
Daði Berg Grétarsson var stigahæstur í liði Ármanns í gær með 27 stig en hjá Skallagrím var Hafþór Ingi Gunnarsson með 24 stig og 6 stoðsendingar. Eftir sigurinn í gær er Skallagrímur 2.-3. sæti deildarinnar ásamt Þór Akureyri með 22 stig.
Næstu leikir í 1. deild karla:
23. feb: Laugdælir-Valur
24. feb: Þór Akureyri-Þór Þorlákshöfn
25. feb: Ármann-FSu
25. feb: Skallagrímur-Leiknir





