Njarðvíkingar hafa fengið leikstjórnandann Giordan Watson til liðs við sig á reynslu og ætti kappinn að leika sinn fyrsta leik gegn Keflvíkingum á fimmtudagskvöld. Hann mun því leysa Christopher Smith af hólmi í liði UMFN, þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkinga, www.umfn.is
Watson þessi er 175 cm á hæð og lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum á árunum 2005-2008 með Central Michigan University og lék svo með Bremerhaven í Þýskalandi í BBL (efsta deild) 2008-2009 en þar var Jeb Ivey einn af liðsfélögum hans, en Ivey lék með Njarðvíkingum 2005-2007.
Watson var svo í Pro A í Þýskalandi sl vetur og lék þar með Nordlingen. Í haust fór hann í æfingabúðir með liði í NBDL og hefur svo leikið í deild í Bandaríkjunum það sem af er vetrar.





