HomeFréttirBikarúrslit karla 2011: KR bikarmeistari eftir 20 ára hlé

Bikarúrslit karla 2011: KR bikarmeistari eftir 20 ára hlé

 
 
Mögnuð frammistaða KR í síðari hálfleik tryggði liðinu sinn fyrsta bikarmeistaratitil í 20 ár. KR og Grindavík buðu upp á spennandi slag í 20 mínútur í Poweradebikarúrslitum karla í dag en síðari 20 mínútur leiksins voru eign KR. Lokatölur í Laugardalshöll voru 94-72 KR í vil þar sem Pavel Ermolinskij sauð saman magnaða þrennu í liði KR í sínum fyrsta bikarúrslitaleik, kappinn setti 21 stig, tók 11 fráköst og gaf 11 stoðsendingar og var að sjálfsögðu valinn besti maður leiksins. Hrafn Kristjánsson þjálfari KR var því með 50% nýtingu í Laugardalnum í dag þar sem kvennalið KR tapaði úrslitaleiknum gegn Keflavík. Þegar lokaflautið gall brutust út gríðarleg fagnaðarlæti í herbúðum KR og ljóst að nú er bikarþurrkur karlaliðsins á enda.
Þá er KR, þrátt fyrir 20 ára hlé í bikarnum, sigursælasta bikarlið landsins í karlaflokki og hefur unnið alls 10 bikarmeistaratitla síðan árið 1970.

 
 
KR-ingar hófu leikinn betur og komust í 12-8 en Fannar Ólafsson varð frá að víkja hjá KR með blóðnasir og inn í hans stað kom Jón Orri Kristjánsson. Grindvíkingar voru einráðir í stúkunni og með hjálp áhorfenda náðu gulir að jafna 14-14 með tveimur körfum í teignum frá fjallinu Ryan Pettinella.
 
Ólafur Ólafsson setti niður fyrsta þrist leiksins eftir tæplega níu mínútna leik en Ólafur kom sprækur af Grindavíkurbekknum og breytti stöðunni í 17-20 Grindavík í vil og gulir leiddu svo 19-20 eftir fyrstu tíu mínútur leiksins.
 
 
Tveir lygilegir þristar láku niður hjá Páli Axeli og Birni Steinari í Grindavíkurliðinu sem kom gulum í 24-26 og var jafnt á öllum tölum í öðrum leikhluta. Björn Steinar og Ólafur Ólafsson tóku fínar rispur hjá Grindavík en Pavel Ermolinskij fór mestan hjá KR.
 
 
Þrátt fyrir að vera ekki í sínum besta gír tókst KR þó að vera með forystuna í leikhléi 40-39. Þorleifur Ólafsson haltraði svo af velli í Grindavíkurliðinu þegar nokkrar sekúndur voru til hálfleiks meiddur á fæti. Hann átti ekki afturkvæmt inn á parketið í dag.
 
 
Pavel Ermolinskij var með 12 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar í hálfleik en hjá Grindavík var Ryan Pettinella með 11 stig og 3 fráköst.
 
 
Páll Axel Vilbergsson minnkaði muninn í 46-45 snemma í þriðja leikhluta en þá var opnað í flugeldasölu KR-inga og röndóttir hófu að sprengja. Grindavíkurvörnin mátti sín lítils gegn KR og vesturbæingar fundu allar glufur sem í boði voru, ekki skemmdi svo fyrir að KR fór að hitta fyrir utan eftir að hafa bara sett þrjá þrista allan fyrri hálfleikinn.
 
 
Eftir þriðja leikhluta leiddi KR 65-53 og því unnu þeir leikhlutann 25-14. Pavel Ermolinskij hélt svo sínum mönnum við efnið í upphafi fjórða leikhluta er hann smellti niður þrist og staðan 68-53.
 
Áfram héldu KR-ingar að gera vörn Grindavíkur hálf vandræðalega, með góðu samspili fengu KR-ingar auðveldar körfur, Brynjar Þór og Hreggviður voru beittir fyrir utan og varnarleikur KR var sterkur á löngum köflum. Allir sem mættu inn á parketið í liði KR í dag lögðu sitt af mörkum en Pavel og Brynjar Þór Björnsson báru af. Hjá Grindavík var fátt um fína drætti í síðari hálfleik og með öllu óskiljanlegt að liðið hafi hreinlega hætt að leika vörn, gulir fengu t.d. aðeins dæmda á sig eina villu allan þriðja leikhluta.
 
 
Lokatölur voru svo 94-72 KR í vil og bikarinn á leið í Vesturbæinn í fyrsta sinn í 20 ár.
 
 
Heildaskor:
 
KR: Brynjar Þór Björnsson 23/5 stoðsendingar, Pavel Ermolinskij 21/11 fráköst/11 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 13/4 fráköst, Fannar Ólafsson 11/6 fráköst, Marcus Walker 9/4 fráköst, Finnur Atli Magnússon 8/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 5/6 fráköst, Ágúst Angantýsson 3, Ólafur Már Ægisson 1, Páll Fannar Helgason 0, Skarphéðinn Freyr Ingason 0, Matthías Orri Sigurðarson 0.
 
 
Grindavík: Kevin Sims 18/4 fráköst, Ólafur Ólafsson 17/9 fráköst, Ryan Pettinella 12/6 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/7 fráköst/3 varin skot, Páll Axel Vilbergsson 8/5 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 3, Helgi Björn Einarsson 2, Mladen Soskic 2/4 fráköst, Þorleifur Ólafsson 0, Egill Birgisson 0, Ármann Vilbergsson 0, Þorsteinn Finnbogason 0.
 
 
Byrjunarliðin:
 
 
Grindavík: Kevin Sims, Þorleifur Ólafsson, Páll Axel Vilbergsson, Mladen Soskic og Ryan Pettinella.
 
KR: Pavel Ermolinskij, Marcus Walker, Brynjar Þór Björnsson, Finnur Magnússon og Fannar Ólafsson.
 
 
Dómarar leiksins: Sigmundur Már Herbertsson, Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson.
Eftirlitsdómari: Pétur Hrafn Sigurðsson
 
 
Mynd og umfjöllun: Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -