HomeFréttirPalm ekki meira með Þórsurum þessa vertíðina

Palm ekki meira með Þórsurum þessa vertíðina

 
Bandaríkjamaðurinn Eric Palm, sem leikið hefur með Þór Þorlákshöfn í vetur, leikur ekki meira með Þórsurum á þessari leiktíð. Palm hefur átti við þrálát meiðsli að stríða og hefur ekkert æft með liðinu síðasta mánuðinn. Hann harkaði þau af sér og spilaði gegn Val og Breiðabliki en meiðslin urðu verri í leiknum gegn Blikum síðasta föstudag og kom í ljós við nánari skoðun að hann má ekki hreyfa sig mikið næsta mánuðinn eða tvo.
Þórsarar klára því síðustu tvo leikina gegn Þór Akureyri og Skallagrími án Bandaríkjamanns en Þórsarar hafa þegar tryggt sér sæti í IE-deildinni næsta vetur. Palm lék 14 deildarleiki með Þorlákshafnarliðinu, gerði 23,5 stig að meðaltali í leik, tók 4,4 fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar.
Mynd/ Palm í leik með Þór gegn FSu fyrr á þessari leiktíð.
 
Fréttir
- Auglýsing -