HomeFréttirHelena stigahæst í sigri TCU

Helena stigahæst í sigri TCU

 
Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig síðastliðna nótt þegar TCU hafði betur gegn Utah skólanum í bandarísku háskóladeildinni í körfubolta. TCU gefur þar með ekkert eftir í baráttunni í Mountain West riðlinum þar sem þær sitja í 2. sæti en á toppnum er skóli BYU sem er ofan við TCU og á tvo leiki til góða.
Eins og fyrr segir skoraði Helena 23 stig í leiknum en hún var einnig með 7 fráköst, 6 stoðendingar, 1 varið skot og 1 stolinn bolta. Þetta var í áttunda sinn á þessu tímabili sem Helena er stigahæsti leikmaður TCU í leik.
 
Aðeins tveir leikir eru eftir hjá TCU í riðlakeppninni áður en kemur að úrslitakeppni riðilsins. Það eru leikir gegn New Mexico 26. febrúar og Air Force skólanum 2. mars. TCU á titil að verja í Mountain West riðlinum en hann unnu þær á síðasta tímabili.
 
Fréttir
- Auglýsing -