HomeFréttirÚrslit: Ingibjörg hetja Keflavíkur

Úrslit: Ingibjörg hetja Keflavíkur

 
Ingibjörg Jakobsdóttir var hetja bikarmeistara Keflavíkur í kvöld þegar hún setti niður sigurþrist um tveimur sekúndum fyrir leikslok og því fór Keflavík með 2 stig úr DHL-Höllinni í kvöld eftir 61-63 sigur á KR. Þessi lið mættust einmitt í Poweradebikarúrslitunum um síðustu helgi þar sem Keflavík hafði einnig sigur af hólmi.
KR 61-63 Keflavík
Ingibjörg Jakobsdóttir gerði sigurstig leiksins eins og áður greinir en beðið er eftir tölfræði úr leiknum.
 
Haukar 59-90 Hamar
Kristrún Sigurjónsdóttir fór hamförum gegn sínu gamla liði Hauka, hún setti 35 stig og gaf 4 stoðsendingar í liði Hamars. Kristrún setti 7 af 9 þristum sínum í leiknum, öll 6 vítin og 4 af 6 teigskotum. Hjá Haukum var Kathleen Snodgrass með 14 stig og 6 fráköst.
 
Grindavík 66-74 Njarðvík
Janese Banks gerði 36 stig og tók 9 fráköst í liði Grindavíkur en hjá sigurliði Njarðvíkinga var Shayla Fields með 33 stig og 7 fráköst.
 
Bæði Hamar og Keflavík unnu í kvöld svo það er enn ekki hægt að slá því föstu að Hamar sé orðinn deildarmeistari því enn eru 4 stig eftir í pottinum og það eru einmitt 4 stig sem skilja að liðin. Sigur hjá Hamri í næstu umferð er liðið mætir KR í Hveragerði tryggir þeim titilinn.
 
Nánar síðar…
Fréttir
- Auglýsing -