Í kvöld hefst 19. umferðin í Iceland Express deild karla og fara fram þrír leikir sem allir hefjast kl. 19:15. Tveir í beinni á netinu en það eru viðureignir KFÍ og Fjölnis annars vegar og hinsvegar slagur Snæfells og Hauka en snillingarnir á Haukar TV ætla að gera sér ferð í Hólminn og sýna beint frá leiknum. Þá mætast Reykjanesbæjarliðin Njarðvík og Keflavík í Ljónagryfjunni.
Leikir kvöldsins:
Njarðvík-Keflavík
Keflvíkingar unnu fyrri viðureign liðanna 78-72 en síðan þá hafa liðin tekið töluverðum breytingum. Ávallt er þessara leikja beðið með mikilli eftirvæntingu enda margfrægar rimmurnar sem þessir erkifjendur hafa háð. Magnús Þór Gunnarsson var í grænu í fyrri leik liðanna en eins og alþjóð veit skipti hann yfir í Keflavík fyrir skömmu og kemur því við sögu í nágrannaglímunni þetta tímabilið hjá báðum liðum.
Snæfell-Haukar
Hólmarar gefa toppsætið ekki svo auðveldlega eftir enda mega þeir vart við því að misstíga sig vitandi að KR er á blússandi siglingu með augastað á deildarmeistaratitlinum. Haukar fá það vandasama verkefni að reyna að vinna í Hólminum í kvöld en það hefur engu liði tekist í deildinni þetta tímabilið.
KFÍ-Fjölnir
Stigin tvö sem í boði eru í þessum leik eru af dýrari gerðinni, KFÍ á botninum með 8 stig og Fjölnir í næstneðsta sæti með 10 stig. Sigur hjá KFÍ heldur voninni á lofti um áframhaldandi sæti í deildinni og slík hið sama má segja um Fjölnissigur. Það verður því allt gefið í þennan leik í kvöld og ekki ólíklegt að við fáum að sjá mikinn bardaga.
Þá er einn leikur í 1. deild karla, Þór Akureyri tekur á móti Þór úr Þorlákshöfn kl. 19:15 í Höllinni á Akureyri. Leikurinn skiptir norðanmenn mun meira máli enda berjast þeir fyrir heimaleikjarétti í úrslitakeppni deildarinnar á meðan Þorlákshafnarbúar eru komnir með farseðil í úrvalsdeild… undirrituðum segir þó svo hugur að Benedikt og félagar ætli sér að klára deildina taplausir og því gæti þetta orðið mikill baráttuleikur.
Mynd/ Úr safni: Þessir tveir garpar gefa ekkert eftir, munu væntanlega berjast hatrammlega í kvöld.





