Logi Gunnarsson og Solna Vikings unnu stóran útisigur í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Víkingarnir heimsóttu 08 Stockholm HR. Lokatölur í leiknum voru 64-101 Solna í vil þar sem Logi Gunnarsson gerði 22 stig á 21 mínútu í leiknum.
Logi var einnig með eina stoðsendingu og setti niður 4 af 8 þristum sínum í kvöld. Eftir sigurinn er Solna með 28 stig í 5.-6. sæti deildarinnar ásamt Helga Magnússyni og félögum í Uppsala Basket en Uppsala á tvo leiki til góða á Solna.





