Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Chicago Bulls lögðu Miami Heat og Denver Nuggets höfðu betur gegn Boston Celtics. Dwyane Wade gerði 34 stig fyrir Miami en þau dugðu ekki til gegn Rose og félögum í Bulls.
Chicago 93-89 Miami
Dwyane Wade gerði 34 stig og tók 8 fráköst í liði Heat en það var samvinna Rose og Luol Deng sem kláraði leikinn. Rose braust í gegn og fann Deng í horninu sem smellti niður þrist þegar 16 sekúndur voru til leiksloka og kom Bulls í 92-89 og eftirleikurinn því auðveldur. Derrick Rose gerði 26 stig í liði Bulls, tók 5 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Heat telfdu aðeins fram átta leikmönnum í leiknum en þeir Arroyo, Howard, Ilgauskas og Maglorie léku ekki með sökum meiðsla.
Denver 89-75 Boston
Í gær sendu Boston Kendrick Perkins frá sér til Oklahoma og Denver hafa ekki farið varhluta af félagsskiptamarkaðnum undanfarið með Billups og Melo í Knicks-treyju þarsíðustu nótt svo þetta voru tvö lið að aðlagast breytingum sem mættust í Denver. Heimamenn fengu 18 stig frá Kenyon Martin og 10 fráköst en Paul Pierce var stigahæstur hjá gestunum með 17 stig og 6 fráköst.
Mynd/ Rose og félagar í Bulls unnu mikilvægan sigur á Miami í nótt.





