HomeFréttirLeikir dagsins: Bikarmeistararnir mæta í Síkið

Leikir dagsins: Bikarmeistararnir mæta í Síkið

 
Í kvöld lýkur nítjándu umferð í Iceland Express deild karla með þremur leikjum og venju samkvæmt hefjast þeir allir kl. 19:15. Hrafn Kristjánsson fer með nýkrýnda bikarmeistara sína í KR í Síkið á Sauðárkróki en þetta verður fyrsti leikur KR-inga eftir að liðið hampaði Poweradebikarnum um síðustu helgi.
Leikir kvöldsins í IEX karla, allir kl. 19:15:
 
Tindastóll-KR
KR er ósigrað á árinu 2011 og nýkrýndir bikarmeistarar, Tindastóll hefur aftur á móti tapað síðustu þremur deildarleikjum sínum í röð en búa þó vel að eiga sterkan heimavöll og gætu hugsanlega farið langt með að stríða KR líkt og þeir gerðu í undanúrslitum bikarsins. Stólarnir eiga nefnilega harma að hefna, KR svipti þá von um að komast í bikarúrslit í Laugardalshöll og það ætti að hjálpa til við að kynda upp fyrir leikinn. KR hefur unnið sjö deildarleiki í röð og eru að leika liða best í deildinni um þessar mundir, gæti orðið hörkuleikur ef heimamenn mæta rétt stemmdir, ef ekki þá geta menn verið vissir um að KR gerir sitt.
 
Grindavík-Hamar
Oft var þörf en nú er nauðsyn, reyndar á það við um bæði lið. Hvergerðingar hafa tapað sjö deildarleikjum í röð á útivelli og Grindavík hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð. Samkvæmt heimildum Karfan.is er Nick Bradford mættur til landsins og allar líkur á að kappinn kunni verði í búning í kvöld. Eftir sigur Fjölnismanna í gær er Hamar í fallsæti og því þarf ekkert að fjölyrða um mikilvægi leiksins fyrir Hvergerðinga en að sama skapi eru Grindvíkingar í fjögurra liða pakkanum á toppi deildarinnar og ef þeir fara ekki að snúa blaði sínu við þá er Stjarnan ekki langt á eftir, aðeins fjögur stig skilja að Stjörnuna og Grindavík.
 
ÍR-Stjarnan
Teitur Örlygsson og Garðbæingar hafa unnið síðustu þrjá deildarleiki sína en ÍR hefur unnið síðustu þrjá heimaleiki sína. Hér eru allar forsendur fyrir miklum slag, ÍR að berjast um sæti í úrslitakeppninni og Garðbæingar eygja möguleika á því að komast ofar í töflunni ef þeir halda rétt á spilunum. Með 20 stig er því ekki óvarlega kastað fram að líkast til eru Garðbæingar öruggir inn í úrslitakeppnina, sigur hjá ÍR í kvöld kemur þeim upp fyrir Njarðvík í töflunni því þeir hafa betur innbyrðis og myndu þá jafna græna að stigum.
 
Tveir leikir eru svo á dagskránni í 1. deild karla í kvöld. Skallagrímur tekur á móti Leikni í Borgarnesi kl. 19:15 og ef Skallagrímur vinnur leikinn þá fella þeir Leikni í 2. deild. Leiknir hefur 6 stig í næstneðsta sæti deildarinnar og þar fyrir ofan eru Laugdælir með 8 stig og hafa betur innbyrðis gegn Leiknismönnum og eftir leikinn í kvöld eru aðeins 2 stig eftir í pottinum hjá Leikni. Það dugir því ekkert annað en sigur hjá nýliðum Leiknis á sterkum heimavelli Skallagríms í kvöld.
 
Hinn leikurinn í 1. deild karla er viðureign Breiðabliks og Hattar sem einnig hefst kl. 19:15 í Smáranum í Kópavogi. Blikar rétt eins og Skallagrímur berjast fyrir heimaleikjarétti í úrslitakeppninni en Hattarmenn hafa 10 stig í 7. sæti deildarinnar en Leiknir hefur innbyrðis á Hött og getur fellt þá ef Leiknir vinnur tvo síðustu leiki sína og Höttur tapar báðum. Ósigur hjá Leikni í kvöld gegn Skallagrím eða sigur hjá Hetti gegn Breiðablik þýðir að Höttur er með öruggt sæti í deildinni.
 
Fréttir
- Auglýsing -