HomeFréttirJordan lætur lykilmanninn Wallace frá sér: Sterling kom Davis fyrir kattarnef

Jordan lætur lykilmanninn Wallace frá sér: Sterling kom Davis fyrir kattarnef

 
Michael Jordan er að taka til í húsakynnum Charlotte Bobcats í NBA deildinni en sjö mínútum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í NBA deildinni sendu Bobcats sinn besta mann, Gerald Wallace, til Portland Trail Blazers.
Þar með er síðasti leikmaðurinn í sjö ára langri sögu Bobcats í NBA deildinni farinn og fyrir vikið fengu Bobcats Joel Przybilla, Dante Cunningham og Sean Marks. Þessir þrír náungar voru þó ekki ástæða skiptanna heldur valréttur í fyrstu umferð nýliðavalsins í sumar sem og í nýliðavalinu 2013.
 
,,Þetta var erfið ákvörðun því í Gerald birtist allt sem við viljum að liðið okkar sýni. Honum er þakkað fyrir sitt veglega framlag til Bobcats en til lengri tíma litið teljum við að þessir valréttir í fyrstu umferð nýliðavalsins 2011 og 2013 verði grunnurinn að uppbyggingu félagsins,“ sagði Jordan.
 
Wallace skilur eftir sig 15,6 stig og 8,2 fráköst að meðaltali í leik og um þessar mundir berjast Bobcats um sæti í úrslitakeppninni og erfitt að sjá þá í þeirri keppni án Wallace, sér í lagi þegar enginn viðlíka kanóna kemur í stað hans.
 
Það hefur verið töluvert um hræringar á leikmannamarkaði NBA deildarinnar nú rétt fyrir lokun og fór Baron Davis frá LA Clippers til Cleveland Cavaliers. Þar með hafði Donald Sterling, eigandi Clippers, lokaorðið í rimmu hans og Davis en þeir tveir voru að munnhöggvast framan af leiktíð og ef þú bítur í höndina sem fæðir þig… þá ertu sendur í versta lið deildarinnar!
 
Fréttir
- Auglýsing -