HomeFréttirÚrslit: Áttundi deildarsigur KR í röð

Úrslit: Áttundi deildarsigur KR í röð

 
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld og tveir í 1. deild karla. Bikarmeistarar KR gerðu góða ferð norður í Skagafjörð og höfðu betur gegn heimamönnum í Tindastól. Grindavík komst á sigurbraut er þeir lögðu Hamar og ÍR skellti Stjörnunni í Hellinum í Seljaskóla.
Tindastóll 82-85 KR
Marcus Walker og Hayward Fain áttu sviðið í kvöld. Í stöðunni 80-83 KR í vil ætlaði Fain í gegnum KR teiginn og um 16 sekúndur eftir, hann lenti í samstuði og missti boltann, Marcus Walker komst í boltann, brunaði upp og skoraði og þar með var björninn unninn enda fimm stiga munur og 9 sekúndur eftir. Marcus gerði 38 stig fyrir KR-inga í kvöld og Brynjar Þór Björnsson setti 14 stig í púkkið. Hayward Fain gerði 33 stig og tók 8 fráköst hjá Stólunum og Sean Cunningham gerði 18 stig.
 
ÍR 100-81 Stjarnan
Sex leikmenn ÍR gerðu 10 stig eða meira í leiknum, þeirra atkvæðamestur var James Bartolotta með 31 stig, 3 fráköst og 5 stoðsendingar. Næstur í röðinni var Nemanja Sovic með 15 stig. Hjá Stjörnunni var Renato Lindmets með 24 stig og 9 fráköst.
 
Grindavík 87-76 Hamar
Hamar tapaði sínum áttunda deildarleik í röð á útivelli í kvöld og Grindvíkingar komust aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Grindavíkur var í búning í kvöld og gerði 10 stig. Stigahæstur í sigurliði Grindvíkinga var Páll Axel Vilbergsson með 21 stig og 5 fráköst. Hjá Hamri var Devin Sweetney með 32 stig og 9 fráköst. Nick Bradford lét að sér kveða í sínum fyrsta deildarleik með Grindavík þetta tímabilið, 11 stig, 8 stoðsendingar og 4 fráköst.
 
Úrslit í 1. deild karla
 
Skallagrímur 78-57 Leiknir
Borgnesingar felldu Leikni með sigrinum og því er ljóst að Leiknir og Ármann leika í 2. deild karla á næstu leiktíð. Kristján Andrésson var stigahæstur hjá Borgnesingum í kvöld með 19 stig og 6 fráköst en hjá Leikni var Hallgrímur Tómasson með 13 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar.
 
Breiðablik 107-93 Höttur
Höttur verður í 1. deild karla á næstu leiktíð, það fékkst staðfest með ósigri Leiknismanna í Borgarnesi í kvöld. Þorsteinn Gunnlaugsson fór mikinn í liði Blika að þessu sinni með 32 stig og 15 fráköst og Arnar Pétursson bætti við 29 stigum og 4 stoðsendingum. Hjá Hetti var Daniel Terrell með 37 stig og 7 stoðsendingar.
 
Nánar síðar…
 
Fréttir
- Auglýsing -