Fjórir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld og máttu Sundsvall Dragons bíða ósigur á sínum sterka heimavelli þegar LF Basket kom í heimsókn. Þá vann Uppsala Basket mikilvægan sigur en þeir berjast við Solna um 5. sætið í deildinni.
Sundsvall 89-99 LF Basket
Jakob Örn gerði 16 stig fyrir Sundsvall og Hlynur bætti við 15 stigum og 12 fráköstum en það dugði ekki til að þessu sinni. Alex Wesby var svo stigahæstur hjá Sundsvall með 25 stig. Hjá LF Basket var Emil Salon með 27 stig.
Uppsala 87-67 Södertalje Kings
Helgi Magnússon lék í tæpar 25 mínútur í leiknum og gerði 4 stig ásamt því að taka 8 fráköst.
Nú eru örfáar umferðir eftir og ræðst það í næstu leikjum hvernig liðin munu raðast fyrir úrslitakeppnina.





