Fyrir yfirstandandi leiktíð héldu félagarnir Arnar Freyr Jónsson og Magnús Þór Gunnarsson út til Danmerkur og hugðust þar leika með úrvalsdeildarliði Aabyhøj. Tímabilið fór út um þúfur hjá Arnari sem eftir um það bil tíu daga veru í Dandaveldi sleit innra krossband í hægra hné. Arnar hefur verið hér heima síðan Magnús snéri aftur frá Danmörku og er þegar byrjaður að skokka á nýjan leik með Keflvíkingum en fer ekki í neinn búning þetta tímabilið. Við náðum í skottið á Arnari og fengum hann að sjálfsögðu til að rýna stuttlega í úrslitakeppnina í Iceland Express deild karla sem hefst annað kvöld.
,,Þetta var viðbjóður, ég reif eitthvað brjósk líka og var heppinn að ekki fór verr. Ég var búinn að vera þarna úti í einhverja tíu daga og allt í gangi, þjálfarinn sáttur við mig og vildi spila hraðann bolta og svo á einhverri sunnudagsæfingu gerðist þetta,“ sagði Arnar Freyr og hafði góða skýringu á því hverjum meiðslunum væru að kenna.
,,Þetta er allt Magga að kenna, Maggi hvatti mig til að koma á þessa æfingu, einhverja sunnudagsæfingu sem ég átti ekkert að mæta á enda veikur svo þetta er allt Magga að kenna,“ sagði Arnar í léttum dúr en Magnús lék svo hálft tímabil með Aabyhøj áður en hann snéri aftur í herbúðir Njarðvíkinga og þaðan í sveit Keflvíkinga þegar Sigurður Ingimundarson lét af þjálfun Njarðvíkurliðsins.
Arnar stefnir á að komast aftur inn á parketið á næstu leiktíð. ,,Ég er byrjaður að jogga á æfingum með Keflavík en ég reyni ekki að vera með þeim núna, það væri fullmikið að hoppa inn í úrslitakeppnina enda sótti ég ekkert um félagsskipti frá Danmörku. Varðandi næsta tímabil er ég allt eins að horfa til Danmerkur enda var flott að vera þar og góður þjálfari hjá liðinu. En það eru nokkur atriði sem skipta máli í þessu en ef ég verð hér heima þá verð ég með Keflavík,“ sagði Arnar sem við fengum svo til að nudda kristalskúluna.
,,Snæfell tekur einvígið við Hauka 2-0, ég held að Haukar séu ekki nægilega öflugir og ekki vanir að vera á þessum stað. Ég segi að Njarðvík taki KR 2-1 enda vantar Fannar í KR liðið þar sem hann er allt í öllu og Njarðvíkingar með nýtt lið. Ég hef trú á Njarðvík og það kom mér ekki á óvart að Brenton skyldi snúa aftur, ég hélt jafnvel að hann myndi sjást fyrr eða um leið og Friðrik og Einar tóku við Njarðvík,“ sagði Arnar en þá eigum við nú eftir rimmur Keflavíkur og ÍR og svo Grindavíkur og Stjörnunnar.
,,Keflavík hefur alltaf verið í erfiðleikum með fyrsta leikinn á móti ÍR, ég held að það sé ekkert þannig núna og að Keflavík taki rimmuna 2-0. Menn eru mótiveraðir og reynsla í hópnum og reynsluboltar á borð við Magnús Þór og Gunnar Einarsson að berja menn áfram. Í einvígi Grindavíkur og Stjörnunnar tel ég að Grindavík vinni 2-1, Nick Bradford er minn maður og svo spilaði ég þarna og hef bara trú á þeim.“
Mynd/ Arnar lék með Grindavík síðast þegar hann spilaði hérlendis.





